utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég held einmitt að þetta skipti gríðarlega miklu máli og þetta er ein af þeim áherslum sem við höfum verið að leggja í ráðuneytinu, að dýpka samstarfið við þessar nágrannaþjóðir okkar, hvort sem það er síðan í gegnum JEF eða tvíhliða samskipti.
Ég vil líka draga fram, af því að hv. þingmaður talaði um NORDEFCO áðan, að það var nýlega uppfært samkomulag sem endurspeglar m.a. breytt umfang norræns varnarsamstarfs sem hefur breikkað, dýpkað og auðvitað orðið aðgerðamiðaðra, einkum í kjölfar þess að öll Norðurlöndin eru núna aðilar að NATO. Við eigum að fara og það hefur verið mjög gott samstarf við Breta. Ég veit það að varnarmálaskrifstofan hefur verið í miklu og nánu samstarfi við þá aðila, sína „counterparts“, í Bretlandi. Það er mjög dýrmætt. Það er dýrmæt þekking sem við fáum þaðan en líka að við erum að miðla því sem við gerum vel á ákveðnum sviðum. (Forseti hringir.) Þannig að já, við erum að leita hófanna og efla samskipti við þjóðir í kringum okkur og ég vil gjarnan í þessu samhengi skoða líka enn frekara samtal við Kanada.