utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Það var ánægjulegt að heyra það mat hæstv. utanríkisráðherra að þróunin á alþjóðavettvangi hafi færst síðustu vikuna í jákvæða átt miðað við það fár sem hefur eiginlega verið í nokkrar vikur þar á undan. Hér er ég auðvitað að vísa í tollastríðin en líka umræðu um það sem er að gerast í Úkraínu og ýmsar yfirlýsingar sem hafa komið frá vinum okkar í vestri. Hæstv. ráðherra, það kemur kannski ekki á óvart, notaði drjúgan tíma af ræðu sinni í að ræða um það sem væri að gerast í Evrópu og Evrópusambandinu og ég vil taka undir að það er mikilvægt fyrir okkur að þróa þetta fjölþjóðasamstarf sem hæstv. ráðherra kom hérna inn á. En mér fannst skorta á í ræðu þar sem talað er um alþjóðamál að ítreka þessa sérstöðu okkar Íslands sem er hin landfræðilega lega og mikilvægi hennar gagnvart vörnum, sérstaklega Bandaríkjanna og innan NATO. (Forseti hringir.) Mig langaði aðeins að heyra örlítið frá ráðherranum, hvort það sé ekki enn þá það mikilvægasta sem við höfum í varnar- og öryggismálum fram að færa, þ.e. annars vegar NATO-aðild okkar og varnarsamningurinn við Bandaríkin.