156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:35]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, ég held að við þurfum að hugsa um þetta allt. Ég dró einmitt fram í minni ræðu að grunnstoðirnar í dag eru NATO-aðildin og mikilvægur samningur okkar við Bandaríkin frá 1951. En ég held að það dyljist ekki að nú er Evrópa öll — og þá er ég ekki bara að tala um Evrópusambandið svo að ég fari ekki í taugarnar á hv. þingmanni — heldur öll Evrópa, Noregur, Bretland og restin af Evrópu, að stíga upp. Öll ríkin eru að auka varnarframlög sín og eru að miða við samtals um 4–5%. Það er eitthvað sem við erum að sjá og það er það sem er verið að kalla eftir, m.a. af hálfu Bandaríkjanna, að Evrópa stígi meira og betur upp. Breytir það samskiptum okkar og samvinnu við Bandaríkin? Nei, ég held einmitt að það styrki Bandaríkin að hafa sterka Evrópu og öfugt af því þetta eru líkt þenkjandi þjóðir og vinir til margra ára. Reynsla okkar og nýleg samtöl, samvinna og fundir af hálfu embættismanna ráðuneytisins gefa mér von um það að samband okkar Íslendinga við Bandaríkin standi jafnvel sterkara sem aldrei fyrr. (Forseti hringir.) En að sjálfsögðu þurfum við að vera með okkar hagsmunamat líka og tryggja varnir okkar í sem víðustu samhengi. Þess vegna er ég að leggja áherslu á tvíhliða samstarf og dýpka það, hvort sem er við Breta, Frakka, Þjóðverja, Norðmenn. (Forseti hringir.) Allt eru þetta samtöl sem við höfum verið að taka á umliðnum vikum og misserum.