utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrt svar um að þessi sérstaða okkar, sem hefur gagnast okkur svo vel í 80 ár, sé það í raun og veru áfram. En ég er sammála hæstv. ráðherra um mikilvægi þess að við aukum samskipti okkar við ekki síst Norðurlöndin og líkt þenkjandi ríki eins og við erum að gera innan JEF til að mynda. Við notum hérna skammstafanir hægri vinstri sem almenningur á Íslandi skilur kannski ekkert en þetta eru Norðurlöndin, baltnesku löndin, Holland, ef ég man rétt, og Bretar. Ég styð allt þetta og við í Framsókn erum tilbúin að vinna að því mjög mikilvæga starfi. Við höfum verið að ræða að aukningin upp á 1,5% — sem er kannski það sem við gætum gert í raun og veru til þess að vera betur í stakk búin til að vera í þessu mikilvæga samstarfi innan NATO en líka gagnvart öðrum verkefnum. Þetta eru upphæðir upp á 7,5–8 milljarða (Forseti hringir.) sem við erum kannski að fara hér inn í, alla vega 7, 7,5 milljarða. Mig langar bara að spyrja: Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að það sé auðvelt fyrir okkur að fara í þessi verkefni upp á svo háar fjárhæðir með stuttum fyrirvara, annars vegar (Forseti hringir.) gagnvart fjárhag ríkissjóðs en líka gagnvart því samtali sem við þurfum að eiga við þjóðina?