utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þessi síðustu orð hv. þingmanns. Það er svo mikilvægt þetta samtal við þjóðina af því að hún er eðlilega varfærin, og ég skil það, þegar við erum að tala um öryggi og varnir og við þurfum að efla okkar viðbúnað. En þetta snýst líka um það að efla okkar borgaralegu innviði sem geta líka nýst ef þarf, og ég vona að aldrei til þess komi að við þurfum að nýta þá, og að þetta sé tvíhliða hlutverk. Það sem ég tel að við þurfum að gera er að einblína hugsanlega á 1,5%, en það má ekki draga línuna og þar greini ég áhyggjur meðal NATO-ríkjanna, sérstaklega í Norður-Evrópu, um að ríki hendi sér bara á 1,5% framlög til borgaralegrar uppbyggingar/hervarna en setji varnirnar sjálfar til hliðar. Það er þetta samtal sem við eigum núna. Það sem við Íslendingar getum gert er að horfa svolítið á þessa tölu en varðandi síðan fjármögnunina þá ætla ég ekki að dylja það að ég held að við þurfum að huga að því sem aðrar þjóðir hafa gert þegar kemur að varnarframlögum,(Forseti hringir.) hvort við þurfum alla vega um tíma að taka þau út fyrir sviga þegar kemur að fjármálum ríkisins.