156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:39]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir greinargóða yfirferð. Ég veit að við deilum þeirri sýn að utanríkismál eru gríðarlega mikilvæg og það að vera með öfluga utanríkisþjónustu hefur sennilega aldrei verið jafn mikilvægt. Það var áhugavert að fara yfir þann víða völl og verður áhugavert að fylgjast með samtalinu hér í dag.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um tvennt, annars vegar stöðu við botn Miðjarðarhafs og hins vegar tengt norðurskautinu. Ef ég byrja á stöðunni á Gaza þá vil ég byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa stigið skrefið tengt UNRWA og sömuleiðis fyrir þá tilkynningu um að sameiginleg yfirlýsing hafi verið gefin út í síðustu viku til að beita þrýstingi á þetta mál. Ég veit hins vegar að margir eru sárir yfir því að íslensk stjórnvöld hafa ekki brugðist við fyrr (Forseti hringir.) og því spyr ég hæstv. ráðherra: Kom ekki til greina nú þegar um 70 dagar eru liðnir frá því að engin aðstoð hefur verið möguleg inn á svæðið, (Forseti hringir.) var reynt eða kom til greina að senda slíka yfirlýsingu með hópi ráðherra annarra ríkja til að beita þrýstingi fyrr?