utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessa fyrirspurn. Ég skil þessar vangaveltur einmitt af því hvernig mál hafa þróast. Þetta er náttúrlega búið að taka langan tíma en það hvernig mál hafa þróast á umliðnum dögum, vikum, er náttúrlega alveg óendanlega sárt og vont og það er ekkert hægt að lýsa þessum hörmungum. Það sem við höfum verið að gera og það sem þó hefur verið farsælt hér á þinginu er að við náðum saman um þingsályktun á síðasta ári og við höfum verið að vinna eftir henni. En eins og ég segi hefur áherslubreytingin verið hjá þessari ríkisstjórn, ekki síst núna eftir þessa 60–70 daga þar sem Ísraelsher er beinlínis búinn að banna þúsundum flutningabíla með nauðþurftir að fara inn á svæðið. Það er verið að beita hungri sem vopni í stríðsátökum og það er algerlega óásættanlegt. Þess vegna höfum við verið í miklu samskiptum, ég og minn norski kollegi, og við vorum síðan í þessari yfirlýsingu með fleirum. Ég veit að það er jafnvel verið að hugsa þetta (Forseti hringir.) hjá öðrum ráðherrum, leiðtogum þessara sömu ríkja.
Ég vil líka geta þess að á föstudaginn var ráðuneytisstjórinn í utanríkisráðuneytinu á fundi ráðuneytisstjóra EFTA-ríkjanna þar sem fríverslunarsamningur við Ísrael átti að uppfærast. (Forseti hringir.) En meðan ástandið er svona og Ísrael er að neita Gaza-búum um hjálp þá erum við Íslendingar ekki tilbúin (Forseti hringir.) til þess að uppfæra fríverslunarsamning við Ísrael og Norðmenn styðja okkur í þessu og Sviss og Liechtenstein sýna skilning.