utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið. Ég held að spurningin í kjarnanum sé: Hefði ekki mátt gera slíka yfirlýsingu eins og gerð var í síðustu viku fyrr á þessum 70 dögum sem einmitt eru liðnir frá því að mataraðstoð hefur getað borist til Gaza? Bara til að draga það sérstaklega fram.
Hin spurningin varðar Norðurskautsráðið en í dag eru Grænlendingar, eða fyrir hönd Dana í raun, að taka við formennsku í Norðurskautsráðinu. Norðurskautsráðið er, eins og við þekkjum, lamað eftir innrás Rússa í Úkraínu og ég fagna því mjög að forsætisráðherra sé nú á fundi um varnar- og öryggismál með kollegum um öryggissamvinnu á norðurslóðum. En ég sakna þess sömuleiðis að það sé meiri áhersla á aðra samvinnu því ef við horfum á söguna þá var það einmitt önnur samvinna, samvinna á sviði vísinda, sjálfbærni, gagna og annað, sem varð grunnurinn að því að Norðurskautsráðið varð sterkt og ég held að við þurfum að fara svolítið aftur (Forseti hringir.) í þann grunn.
Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Sér ráðherra tækifæri til að auka samvinnuna á norðurslóðum og þá sérstaklega (Forseti hringir.) núna tengt Grænlandi þar sem við eigum svo mikið inni í samvinnu á sviði menntamála, menningarmála, almannavarnamála (Forseti hringir.) og sennilega mun okkar samvinna verða gríðarlega mikilvæg og enn mikilvægari þegar fram líða stundir?