utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á þakka utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytinu fyrir þá efnisríku og gagnlegu skýrslu um utanríkismál sem hér er til umræðu. Mig langar að nefna hér í byrjun, til umhugsunar, hvort ekki geti náðst samstaða um að flýta útgáfu skýrslunnar og venjuhelga þau vinnubrögð að hún komi fram töluvert fyrr á árinu. Ég veit að á bak við þessa skýrslu er mikil vinna en ég nefni þetta því ég tel að nokkrar gildar ástæður séu fyrir því að slíkt verklag sé gagnlegt fyrir málaflokkinn. Í fyrsta lagi væri gott ef ársskýrslan endurspeglar almanaksárið sjálft að sem mestu leyti. Slík breyting gerir skýrsluna, að ég tel, að aðgengilegri heimild þegar fram líða stundir. Í öðru lagi tel ég að þessi mikilvæga umræða um utanríkismál sem fylgir útgáfu skýrslunnar árlega rúmist betur ef hún á sér stað fyrr á árinu, en blandast ekki ofan í þinglokatörnina og asa og spennustig sem einkennir þingstörfin þá. Að lokum gæti umræða um skýrsluna sjálfa og þingleg meðferð hennar fengið meira rými í almennri umræðu ef hún á sér stað fyrr á þingvetrinum, nær í tíma. Ég vona að þessari ábendingu verði vel tekið.
Frú forseti. Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur með þá staðreynd að við lifum nú viðsjárverðustu tíma í alþjóðamálum í sögu íslenska lýðveldisins. Þetta fór hæstv. ráðherra vel yfir í sínum orðum og get ég tekið heils hugar undir það allt. Og hafandi sagt það þá vil ég benda á hið augljósa. Við lifum tíma sem gætu reynt meira á færni okkar á alþjóðasviðinu en nokkru sinni fyrr. Meðan margar aðrar þjóðir hafa mótað og þróað utanríkisstefnu og utanríkisþjónustu sína í gegnum árhundruð þá má segja að í sögulegu samhengi séum við Íslendingar rétt að slíta barnskónum sem fullvalda ríki sem hefur metnað til að standa undir þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera að vera frjálst og fullvalda ríki í samfélagi þjóðanna. Í því samhengi þurfum við að hugsa til langs tíma, mjög langs tíma. Markmið okkar hlýtur að vera að Ísland sé frjálst og fullvalda, ekki bara út þetta kjörtímabil, næstu áratugina eða fram yfir næstu heimskrísu. Við sem berum ábyrgð á þróun íslensks samfélags berum ábyrgð á því að stuðla að því að Ísland sé sjálfstætt, frjálst og fullvalda um alla framtíð, næstu hundrað ár, næstu fimm hundruð ár, um aldur og eilífð meðan land byggist.
Ísland var undir erlendri stjórn í 650 ár áður en við unnum fullveldi okkar árið 1918 og við vorum konungsríki í 36 ár til viðbótar. Frá þeim tíma hefur okkur ekki bara tekist að þroska samfélag okkar í átt til velmegunar, við höfum stimplað okkur inn á landakort heimsins. Fáninn okkar blaktir meðal fána stórþjóða við alþjóðastofnanir og við tökum sæti sem jafningjar meðal fulltrúa annarra ríkja. Það er hvorki sjálfsagt né auðvelt að fámennu landi eins og Íslandi takist að viðhalda sjálfstæði, frelsi og fullveldi í þeim ólgusjó sem þróun alþjóðamála getur verið yfir áratugi og aldir. Almenningur um heim allan skilur að Ísland er sjálfstætt ríki, þjóð sem ræður sínum eigin málum og hefur farið að jafnaði vel að ráði sínu, staðsett sig réttum megin í sögunni og fundið leiðir til þess að vera gagnlegur þátttakandi. Við höfum verið meðvituð um þær takmarkanir sem fámenni og herleysi felur í sér en jafnframt nýtt okkur þá eiginleika sem styrkleika til þess að leggja stundum meira af mörkum en stærð okkar gefur tilefni til. Á bak við þá viðurkenningu sem Ísland hefur á alþjóðlegum vettvangi, viðurkenningu sem hundruð þjóða um heim allan njóta ekki, er orðspor sem okkur hefur tekist að byggja upp. Þetta orðspor byggist ekki nema að mjög takmörkuðu leyti á okkar efnahagslegu velgengni, hagtölum eða útflutningi á mikilvægum afurðum, þótt það hjálpi allt til.
Hvað er það sem er mikilvægast til þess að tryggja stöðu Íslands til langframa sem þjóð meðal þjóða? Ég held það sé einkum þrennt. Í fyrsta lagi íslensk menning, bæði gömul og ný. Hún nýtur virðingar og aðdáunar um allan heim og það er listafólkið okkar sem eru í raun mikilvægustu og verðmætustu sendiherrar íslensku þjóðarinnar. Í öðru lagi er það geta okkar til þess að viðhalda velmegun, lífsgæðum, frelsi, réttarríki og mannréttindum fyrir þegna landsins. Og í þriðja lagi er það þátttaka okkar í alþjóðlegu samstarfi þar sem utanríkisþjónustan og framganga stjórnvalda á alþjóðavettvangi skiptir sköpum.
Frú forseti. Utanríkisráðherra vitnaði í stofnun Sameinuðu þjóðanna í máli sínu. Þeir sem þar héldu á penna vissu hvað var í húfi og þekktu líka hætturnar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Vér, hinar sameinuðu þjóðir, staðráðnar í að bjarga komandi kynslóðum undan hörmungum ófriðar, sem tvisvar á ævi vorri hefur leitt ósegjanlegar þjáningar yfir mannkynið.“
Tilgangur alþjóðakerfisins sem svo margir virðast vera farnir að efast um var að „bjarga komandi kynslóðum“. En því miður virðist margt benda til þess að farið sé að fenna ískyggilega yfir minningarnar um það sameiginlega skipbrot alþjóðakerfisins sem varð kveikjan af þessum orðum. Við skulum því ekki leyfa okkur þann munað að bægja frá okkur þeirri tilhugsun að ákvarðanir okkar og framganga geti haft afgerandi áhrif á hvernig frelsi, friður og fullveldi á Íslandi þróast á næstu árum og áratugum og jafnvel til frambúðar. Í þessum efnum er ekki valkostur að vona það besta eða ætla að gera betur næst. Við þurfum að vera framúrskarandi og við þurfum að vera það núna.
Flest af því sem gerist í heiminum er knúið áfram af kröftum sem einstakar þjóðir geta lítið ráðið við, hvað þá fámennt og herlaust ríki eins og Ísland. En þeim mun mikilvægara er að tryggt sé að það sem er á okkar eigin valdi sé eins vandað og hugsast má. Þetta er veruleiki sem margar fámennar þjóðir hafa áttað sig á og þess vegna lagt ríka áherslu á að byggja upp heimsklassa utanríkisþjónustu. Við þurfum að efla metnað okkar til þess sama og ég veit að við búum að góðum grunni í íslensku utanríkisráðuneytinu þar sem framúrskarandi fólk er á hverju strái og botnlaus metnaður ríkir fyrir þjóðarhag. Vinnusemi og fórnfýsi utanríkisþjónustunnar eru einkenni þeirrar vinnustaðamenningar sem þar hefur verið sköpuð undir forystu þeirra embættismanna sem hefur verið treyst til forystu. Þetta þekki ég vel, enda naut ég sjálfs góðs af því þegar ég gegndi embætti utanríkisráðherra. Þetta er góður grunnur til þess að byggja á — og byggja við þurfum. Við myndum ekki vilja bíða þangað til skip hefur strandað við hættulegar grynningar til þess að byrja að velta fyrir okkur hvort tímabært sé að reisa vita. Á sama hátt þurfum við að hugsa um utanríkisþjónustuna. Sterkt orðspor, virðing og djúp tengsl verða að vera til staðar þegar á reynir. Það er of seint að byrja að byggja vitann þegar þokan er skollin á.
Ef til þess kemur að vernda þurfi íslenska hagsmuni gegn raunverulegri hættu, að verja þurfi fullveldi okkar gagnvart ágangi annarra, þá verða embættismenn íslensku utanríkisþjónustunnar ekki aðeins í því sýnilega hlutverki að ráðleggja íslenskum stjórnvöldum. Utanríkisþjónustan sjálf þarf að hafa bolmagn og tiltrú til þess að vinna að hagsmunum Íslands á margvíslegum vettvangi og er mest af þeirri vinnu mjög lítið sýnileg gagnvart almenningi, íslensku atvinnulífi, fjölmiðlum og jafnvel okkur stjórnmálamönnum. Það er nefnilega í eðli góðrar utanríkisþjónustu að verðmætasta framlag hennar felst oft í því að koma í veg fyrir að hugsanleg vandamál verði að raunverulegum vandamálum og leysa raunveruleg vandamál meðan þau eru lítil og viðráðanleg en láta þau ekki vaxa og verða að krísum.
Ísland býr að framúrskarandi utanríkisþjónustu, miðað við stærð. Þetta sannast meðal annars af þeim árangri sem náðst hefur við að gæta hagsmuna okkar á sviði hafréttar en líka í framlagi Íslands í fjölþjóðasamstarfi. Með því að sýna bæði dugnað og metnað í slíku samstarfi undirstrika fulltrúar Íslands, hverjir sem þeir eru, réttmætan sess okkar í samfélagi þjóðanna. Mikilvægt er að halda áfram að gefa utanríkisþjónustunni færi á því að standa vörð um og tvíefla orðspor okkar í alþjóðlegu samstarfi, að geta raunverulega sinnt hagsmunagæslu fyrir Ísland því það gerir það enginn annar. Sendiráð Íslands víða um heim gegna margvíslegum hlutverkum eins og lesa má um í skýrslu ráðherra. Í þeirri þoku sem nú er að leggjast yfir á alþjóðasviðinu tel ég að huga þurfi að því að efla sendiráð okkar og fjölga útsendum starfsmönnum, sérstaklega í þeim ríkjum sem standa okkur næst.
Ég fer hér yfir mikilvægi utanríkisþjónustunnar, ekki vegna þess að ég fékk að starfa þar, heldur vegna þess að ég tel einfaldlega að hún njóti of sjaldan sannmælis. Þeir sem halda að starf diplómata snúist um veisluhöld og huggulegheit eru á villigötum og það er mikilvægt að spyrna við þessum leiðinlegu ranghugmyndum því þær eru ekki bara þreytandi og ósanngjarnar heldur geta þær haft raunverulega skaðleg áhrif á mikilvægustu hagsmuni íslensku þjóðarinnar á óvissum tímum. Aftur: Hagsmunagæsla Íslands er Íslands að sinna. Við megum ekki þurfa að læra um mikilvægi góðrar utanríkisþjónustu af biturri reynslu. Við þurfum að vera skrefi á undan óveðrinu.
Alþingi, ríkisstjórn og allt embættismannakerfið hafa veigamiklu hlutverki að gegna þegar kemur að stöðu Íslands á alþjóðasviðinu. Í hvert skipti sem þingmenn eða ráðherrar taka þátt í alþjóðastarfi þurfum við að líta á okkur sem sendiherra; taka hlutverki okkar af alvöru og hafa ítrustu fagmennsku að leiðarljósi. Þetta krefst þess af okkur öllum að gera okkur far um að fylgjast betur en nokkru sinni með þróun heimsmála og við þurfum ekki að leita til útlanda til að fá staðfestingu á mikilvægi þess að skilja heiminn. Vits er þörf, þeim sem víða ratar, segir í hinum ævafornu Hávamálum og gildi þess heilræðis er ekki minna nú en áður.
Frú forseti. Ég tek undir orð utanríkisráðherra um mikilvægi þess að Ísland láti sitt ekki eftir liggja í samstöðu okkar nánustu bandalagsríkja við frelsisbaráttu Úkraínu. Mig langar að nýta þetta tækifæri og þakka hæstv. ráðherra og ríkisstjórn fyrir að hafa haldið áfram að styðja raunverulega við varnarbaráttu Úkraínu, eitthvað sem er ekki endilega sjálfsagt, ekki endilega pólitískt vinsælt og við sjáum í skoðanakönnunum að minni hluti þjóðarinnar styður það. Þannig að ég er raunverulega þakklát fyrir þá festu sem hæstv. ráðherra og ríkisstjórn hefur sýnt því þetta er grundvallaratriði eins og hún fór vel yfir áðan.
Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu á sér enga réttlætingu. Þar eru línur eins skýrar og hugsast getur. Stórveldi ræðst inn í nágrannaríki með það markmið að beygja það undir vilja sinn. Brottnám úkraínskra barna er hluti af úthugsaðri hernaðaráætlun sem hefur það markmið að útmá þjóðareinkenni friðsamrar nágrannaþjóðar. Tugum þúsunda barna hefur beinlínis verið stolið, þeim komið fyrir á rússneskum heimilum og víðar og þau útsett fyrir linnulausri innrætingu sem hefur þann tilgang að fá þau til þess afneita uppruna sínum, menningu, tungumáli, foreldrum sínum og heimahögum. Senda þau í stríð, kennt að hata móðurland sitt. Þau eru notuð sem vopn til þess að hafa eyðileggingaráhrif og eyða úkraínskri þjóð.
Hvort sem tekst að semja um vopnahlé á næstunni eða ekki þá er því miður algerlega augljóst að ógnin sem steðjar að Vesturlöndum frá Kreml er raunveruleg og viðvarandi. Síðast staðfestu pólsk stjórnvöld að rússnesk stjórnvöld hafi verið á bak við íkveikju í verslunarmiðstöð í Varsjá fyrir ári síðan. Yfirmenn í leyniþjónustum Bretlands og Þýskalands hafa sagt að margar af aðgerðum Rússa gegn ríkjum Vestur-Evrópu séu á mörkum þess að vera stríðsaðgerðir. Þess vegna ætti það að vera svo augljóst hvernig þessi hryllingur hefur bein áhrif á öryggishagsmuni okkar og álfunnar allrar og okkur hér á Íslandi vegna þess að við vitum að Rússar róa öllum árum að því að grafa undan samstöðu með lýðræðislegum og frjálslyndum gildum í Evrópu, reyna að reka fleyg milli bandalagsríkja og ólíkra samfélagshópa, beita linnulausum netglæpum og kerfisárásum til þess að grafa undan innviðum og yfirflæða upplýsingaumhverfi okkar með margvíslegum falsfréttum og tilraunum til heilaþvottar á hverjum einasta degi. Ein mesta hættan felst í tilraunum Rússa til þess að ráða ungmenni á Vesturlöndum til þess að vinna skemmdarverk og glæpi, oft án þess að gerendurnir viti hver er raunverulega á bak við peningana sem þeir fá fyrir illvirkin.
Utanríkisráðherra nefndi einnig hryllinginn sem á sér stað á Gaza. Ég þakka fyrir frumkvæði utanríkisráðherra varðandi sameiginlega yfirlýsingu sex, þó ekki nema sex, utanríkisráðherra um stöðuna þar. Þótt átök Ísraela og Hamas hryðjuverkasamtakanna séu flókin og mörg svæði grá þá blasir það við að framganga Ísraels er fyrir löngu orðin óverjanleg. Þetta sjá ekki bara óvinir Ísraels heldur líka vaxandi fjöldi ísraelskra borgara sem hryllir við þeirri grimmd og lögbrotum sem framin eru í þeirra nafni. Og fyrir fólk eins og mig sem styður einlægt tilverurétt Ísraelsríkis og virðir rétt þess til þess að vernda borgara sína þá er ömurlegt að fylgjast með því hvernig stjórnvöld í Ísrael hafa farið með þá velvild og traust sem þeim hefur verið sýnt.
Frú forseti. Sá stutti tími sem við höfum hér gefur ekki rými til þess að fara á dýptina í öll þau mikilvægu mál sem falla undir ábyrgðarsvið utanríkisráðuneytisins. Innan skamms mun þingið fá til umfjöllunar stefnu í varnarmálum sem ég vona að hljóti góða yfirferð og athygli þingheims.
Ég vil þó nefna hér að ég tel að það skipti miklu máli fyrir Ísland að leita allra leiða til þess að leggja af eigin frumkvæði fram allt það gagn sem okkur er mögulegt í því samstarfi sem nú er að fæðast milli Evrópuþjóða og varðar stuðning við Úkraínu og samræmdar varnir gegn þeirri ógn sem okkur stafar af rússneskri útþenslustefnu. Í þessum málum gæti þurft að taka ákvarðanir hratt og Ísland á að undirstrika þá kosti sem við getum haft upp á bjóða í krafti smæðar okkar og vilja til þess að láta gott af okkur leiða. Þá vil ég sömuleiðis nefna mikilvægi þess að við höldum áfram þeirri þróunarsamvinnu sem við erum í, sérstaklega nú þegar neyðin hefur aldrei verið meiri og þegar forgangsröðun margra breytist og því miður er ekki ólíklegt að það muni bitna töluvert á þeim sem síst skyldi.
Að lokum, frú forseti, þakka ég utanríkisráðherra fyrir samráð við okkur í utanríkismálanefnd. Mig langar að hvetja hæstv. ráðherra og forseta til að setja á dagskrá munnlega skýrslu utanríkisráðherra um stöðuna í alþjóðamálum líkt og ég veit að hefur verið nefnt úr þessum ræðustól vegna þess að við þurfum einfaldlega meiri umræðu um þá alvarlegu stöðu og þróun sem við horfum upp á. Það er gagn að því fyrir Alþingi og fyrir þverpólitíska samstöðu að taka þá umræðu hér. Það eru mikilvæg skilaboð fólgin í því að forystumaður og reyndasti stjórnmálamaður meiri hlutans taki að sér þetta embætti og sinni því af skörungsskap og festu, sem hæstv. utanríkisráðherra hefur gert fram að þessu.