utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hlý orð hv. þingmanns sem ég hef áður sagt er að mörgu leyti svo sterk fyrirmynd fyrir okkur konur. Ég vil um leið þakka henni líka fyrir þessi mikilvægu orð um starfsfólkið sem vinnur með okkur í utanríkisráðuneytinu, það er algjörlega framúrskarandi. Það vinnur hljóðlega, það er alveg svakaleg þekking, með fullri virðingu fyrir öllum öðrum ráðuneytum, og maður kemur aldrei að tómum kofanum. Það er svo dýrmætt, ekki síst á svona örlagatímum eins og við lifum núna. Þá kemur líka kannski íslenska elementið fram, að fólk gengur nokkurn veginn í alla hluti en þekkingin er til staðar og það er svo mikið öryggi að finna það líka sem ráðherra.
Talandi um framúrskarandi, ég vil líka þakka hv. þingmanni fyrir framúrskarandi ræðu þar sem var snert á svo mörgum þáttum. Mig langar rétt aðeins að nefna, af því að við erum að tala um þjónustuna, að ég flutti þjónustuna í nokkra daga á Vestfirði. Nú stefnum við að fara með hana á Norðurlandið, ekki síst til þess að reyna að fara í þetta samtal um af hverju við erum með utanríkisþjónustu. Hún er ekki bara kokteilar og kaffi og eitthvað heldur er hún svo miklu meira. Tala um borgaraþjónustuna, tala um virði þess — það kostar auðvitað að verja EES-samninginn, örugglega hátt í 2 milljarða, minnir mig að talan sé, en það verðmæti sem við fáum út úr honum út frá peningalegu sjónarmiði eru hátt í 40 milljarðar sem íslensk fyrirtæki og heimili fá á móti. Þessi mikla virkni af hálfu ráðuneytisins er alveg ótrúlega dýrmæt fyrir landið okkar.
Mig langar að spyrja, af því að hv. þingmaður kom inn á varnirnar og hún situr í þessum vinnuhópi: Hvað leggur hv. þingmaður sjálf megináherslu á? Hvað finnst henni brýnast fyrir okkur Íslendinga að fara í? Við þurfum samstöðuna, við þurfum skilninginn en hvað myndi hv. þingmaður helst gera akkúrat núna?