156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[18:04]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er ótrúlega gott að finna það í þessari vinnu fulltrúa allra þingflokka að það er mikill vilji til þess að vanda til verka, vera saman í liði fyrir Ísland og til að ná þverpólitískri samstöðu um það sem er mikilvægast. Það er ótrúlega gott veganesti. Það er auðvitað líka gott að finna, sem ég vissi en er augljóst, að við byggjum á mikilli vinnu sem hefur verið unnin undanfarin ár, hvort sem það er uppfærsla á áætlunum, frekari útrás í þátttöku á alþjóðavettvangi og ég held að það sé forgangsatriði að halda því áfram, fjölga borgaralegum sérfræðingum úr kerfinu úti til þess að þau komi síðan enn þá sterkari heim, efla okkar yfirsýn og burði á Keflavíkursvæðinu vegna þess að þar er mikill fjöldi fólks á hverjum degi, bandamenn okkar sem sagt sem eru þar, og við þurfum að vera öflug þar. Það þarf auðvitað að fara yfir stofnanaumgjörð en ég held að við náum ekki að klára það áður en við skilum af okkur, enda er það stærra mál. Við höfum verið að gera vel í netvörnum en það verður bara stærra og stærra verkefni og þótt við hlaupum hraðar nú en við gerðum áður þá eru allir aðrir líka að hlaupa hraðar, sérstaklega okkar óvinir sem nota það til að skaða okkur raunverulega. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að vera bara mjög einlæg í þessari vinnu og skrifa út raunverulega hver staðan er núna, hvað er búið að gera og hvað við metum mikilvægt að gera í framhaldinu. Það mun verða mikil þörf á því að kynna þetta, undirbyggja það vel, ná samtali við fólk sem er áhrifavaldar í þessari umræðu vegna þess að það er rétt sem hæstv. ráðherra sagði áðan, þetta tekur tíma fyrir samfélagið. Þrátt fyrir að það séu mjög mannlegar og góðar og gildar ástæður fyrir því að fólk vill hafa varann á þá verðum við bara að setja það á borðið sem raunverulega er að gerast (Forseti hringir.) vegna þess að við viljum ekki standa í þeim sporum að það gerist einhverjir hlutir í kringum okkur, kannski ekki hér, sem hafa beinar afleiðingar og það komi almenningi mjög að óvörum.