156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[18:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Aðeins til viðbótar þessu þá er ég algjörlega sammála, við viljum líka hafa hagað okkur þannig að við höfum sýnt að við séum verðugir bandamenn, að þegar eða ef við þurfum að taka upp tólið eða hvernig sem við höfum síðan samband við þá sem við þurfum að fá hjálp frá, þá sé það þannig að við höfum staðið okkur í stykkinu. Við erum ekki bara þiggjendur heldur erum við líka þátttakendur í því að tryggja frið og frelsi, hvort sem er í Úkraínu eða annars staðar í álfunni. Það skiptir máli að við tökum þátt. Ég fagna þessum, ekki bara mikla áhuga heldur líka metnaði og mikilvægu innsýn inn í nákvæmlega þennan málaflokk og mikilvægt að fólk heyri það sem hv. þingmaður hefur verið að segja.

Ef ég fer aðeins í ræðuna þá vil ég taka undir það sem sagt var um munnlegu skýrsluna, ekki spurning. Ég held að við eigum að hafa hana einhvern tímann í júní þegar við erum aðeins komin inn í þann mánuð, ég legg það til. Ég tek líka undir það sem sagt var varðandi framlögin, við þurfum að efla öryggissvæðið og við þurfum að auka framlög okkar og standa við okkar skuldbindingar. En ég held einmitt, vegna þess sem hv. þingmaður sagði varðandi það að við getum sent borgaralega starfsmenn til útlanda, að það er mikilvægt að byggja undir mannauðinn, bæði til að geta sent fólk út en líka að byggja upp mannauðinn hér heima. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við gerum það. Í því mun hugsanlega okkar mesti kostnaður felast þegar til lengri tíma er litið. Það væri gott að heyra þau viðhorf frá hv. þingmanni.

Aðeins um netvarnir. Það er alveg þannig að við vitum það eru ríki sem eru að beita sér markvisst og hafa gert í áraraðir til að reyna að sundra samstöðu Vesturlanda, demba sér inn í viðkvæm þjóðfélagsmál, heltaka samfélagsmiðla o.s.frv., hvort sem við horfum til Moldóvu, Rúmeníu eða hvað það er. Það mun líka gerast og er kannski að einhverju leyti að gerast hér heima. (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður áhyggjur af því að það verði svona bottar og nettröll sem munu skipta sér af íslensku samfélagi og samfélagsumræðu, hvort sem það er í tengslum við sveitarstjórnarkosningar, þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald viðræðna við ESB eða eitthvað annað?