utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Ég gleymdi að nefna áðan að það er algerlega augljóst í mínum huga að við munum þurfa að auka varnarútgjöld. Þá erum við ekki bara að horfa á það hvaða krónum við eyðum heldur hvað er það sem þarf að gera og hver er okkar heimavinna í því verkefni. Það er líka mikilvægt að almenningur sé þátttakandi í því samtali og hafi skilning á þessu: Hvað er það sem við raunverulega útvistum til Atlantshafsbandalagsins eða annarra og hvað er okkar að sinna? Sem betur fer er það nú þannig að Atlantshafsbandalagið kemur ekki með beinum hætti inn nema bara þegar allt er komið á versta veg. Allt fram að því er okkar hlutverk og því eigum við að sinna. Það er mjög margt sem við getum gert, okkar framlag. Mér finnst við eiga að nálgast það þannig að við spyrjum okkur: Hvað er það sem við getum gert? Hvert er okkar framlag? Við eigum að vera með þau gleraugu að horfa á það í krafti smæðarinnar, ekki vera allt of upptekin af því hvað við getum ekki gert af því að við erum herlaus, af því við erum fámenn, heldur hvað getum við gert einmitt vegna þess að við erum fámenn, þar sem boðleiðir eru stuttar, þar sem fólk gengur í öll verk, það er ákveðin skilvirkni og við getum tekið ákvarðanir hratt. Hvað getum við gert í krafti smæðarinnar? Rétt eins og við getum stundum sagt hluti sem stærri þjóðir geta ekki sagt, við getum brotið ísinn og svo fleiri fylgt á eftir líkt og við gerðum þegar Eystrasaltsríkin fengu sjálfstæði sitt að nýju.
Mér líkar það mjög vel þegar nálgunin er út frá því að vera verðugur bandamaður því að líkt og hæstv. ráðherra sagði, og ég þreytist ekki á að segja það líka, þá skiptir máli að vera með inneign hjá vinum og bandamönnum ef eitthvað annað gerist. Það er ekki þannig að menn geti alltaf sagt: Við tökum ekki afstöðu, við erum bara hér að sjá um okkar hagsmuni, en ætli síðan að hringja þegar þess þarf. Hagsmunirnir snúast nefnilega um það. Maður heyrir stundum sagt að nú séu tímar þar sem við eigum að tryggja okkar hagsmuni. Ég segi: Það gerum við best með því að vera verðugur bandamaður og vinna með öðrum.
Ég hef meiri háttar áhyggjur af afskiptum erlendra aðila (Forseti hringir.) af umræðu hér, allt frá hinu smávægilega yfir í hið stóra. Þetta sjáum við í Bandaríkjunum á stórum skala og miðað við það hvað er auðvelt að gera það þar þá getum við bara gert ráð fyrir því (Forseti hringir.) að það sé að sjálfsögðu hér. Við verðum að hafa vökul augu, við hér, en ekki síst verðum við að upplýsa almenning um það þannig að hann hafi tólin til að átta sig á því hvenær er verið að misnota þessi verkfæri og samfélagsumræðu með óeðlilegum afskiptum.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna þingmenn og ráðherra á að virða ræðutímann.)