utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir mjög góða og yfirgripsmikla ræðu. Mig langaði eiginlega bara að freista þess, vegna þess að tíminn var takmarkaður, að fá þingmanninn til að velta aðeins vöngum yfir stöðunni í heiminum og þá er ég að tala um stóru línurnar. Ef við horfum á þessar stóru línur frá íslensku sjónarhorni þá erum við að fara frá í raun býsna löngu tímabil þar sem við vorum með ofboðslega skýra sýn og nefnum oft þrjá hornsteina utanríkis- og varnarstefnu Íslendinga; varnarsamninginn við Bandaríkin og aðildina að NATO og síðan myndum við nefna herleysið sem þriðja hornsteininn. En ég held að við getum öll verið sammála um að á þessu langa tímabili hafi þetta reynst vel. Við getum bara nefnt sjálfstæði Íslands á Þingvöllum 1944. Við getum nefnt Marshall-aðstoðina, sem kannski má velta fyrir sér hvort við ættum að fá en fengum engu að síður, og við getum nefnt þöglan stuðning í þorskastríðinu, sem skipti án efa verulegu máli fyrir farsæla niðurstöðu við útfærslu landhelgi Íslands, sem er auðvitað eitt stærsta lykilhagsmunamál þjóðarinnar á síðustu öld. En hvað nú? Hvernig tökumst við á við það þegar afstaða Bandaríkjanna breytist eða virðist óljós eða jafnvel eitthvað sem við viljum ekki sjá, til Úkraínu, til Rússlands, jafnvel til NATO, Evrópu, bandamanna, Danmerkur, Grænlands, Kanada? Evrópa stendur upp, eins og þingmaður sagði hér í andsvari áðan. En hvernig tryggjum við öryggi og hagsmuni Íslands, smáríkis, við þessar aðstæður? Hvernig mörkum við strategíska stefnu til að fást við þessa óvissu og þessar breytingar í umhverfinu?