156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[18:17]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum svarið og þessa greiningu sem ég get tekið undir. Ég held að við þurfum að horfast í augu við það, rétt eins og þingmaðurinn segir, að við þurfum að kosta meiru til. Það felst í því að verða vera verðugur bandamaður. Ég kýs að skilja orð þingmannsins þannig að við séum kannski sammála um að reyna eins og kostur er að rækta hið gamla og trausta samband við Bandaríkin á grundvelli varnarsamningsins og innan NATO. En ég tek um leið undir áhyggjur af ýmsu sem sagt er og sumt sem gert hefur verið. Við lifum á, getum við sagt, viðsjárverðum tímum. Það er margt að gerast eiginlega bara frá degi til dags og viku til viku. Við horfum fram á leiðtogafund NATO o.s.frv. og þurfum líka að velta fyrir okkur hvort áherslubreytingarnar sem sést glitta í í ýmsum yfirlýsingum séu að einhverju leyti ekki varanlegar og eitthvað sem við þurfum að búa okkur undir. Mér finnst freistandi að velta því upp hvort við þurfum ekki að taka virkan þátt með öðrum bandamönnum og þessari þróun mála sem er að verða í Evrópu og undir forystu Evrópusambandsins með uppbyggingu áfallaþols á öllum sviðum, sterkra innviða, þessarar fyrstu línu, sem sagt framlínu í því að vera samfélag með seiglu sem býr sig undir allt sem gæti komið upp og hvernig við eigum að haga málum til að geta verið traustur bandamaður í því áfram, ekki þrátt fyrir NATO heldur innan NATO. Hvaða afstöðu hefur þingmaðurinn til hugmynda um einhvers konar sterkari Evrópustoð innan NATO?