156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[18:19]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það sem liggur auðvitað fyrir er að samstarf Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins er meira núna en það hefur nokkru sinni verið. Það er jákvætt og ég vona að það haldi áfram að þróast þannig að það sé svolítið skilgreint hlutverk sem Evrópusambandið sinnir í þágu þeirra sem eru í sambandinu og nánustu samstarfsaðila eins og EES-ríkjanna og síðan það sem NATO sinnir. Líkt og hv. þingmaður kemur inn á þá er það áfallaþol og þessi viðnámsþróttur, sem er það sem Evrópusambandið er að leggja áherslu á, mér finnst það gott, og að halda síðan hinum beinharða varnarhluta Atlantshafsbandalagsmegin. Þar erum við með marga og mikla styrkleika en þurfum auðvitað að kortleggja það sem verið er að gera. Hvar eru okkar veikleikar og hvernig getum við bætt úr þeim? Það skiptir líka máli, af því að hv. þingmaður nefndi hina gömlu bandamenn, að við erum auðvitað líka búin að stórauka samstarf okkar í NORDEFCO, þ.e. Norðurlandasamstarfið, það hefur þróast mjög hratt, og sömuleiðis hin sameiginlega viðbragðssveit eða það sem við köllum JEF, sem er undir forystu Breta, með Norðurlöndum, Eystrasaltsríkjunum, Hollandi og Bretlandi. Þess vegna er það algjört grundvallaratriði að við sinnum þessu, að við séum með utanríkisþjónustu sem getur sinnt þessu og aðrar grundvallarstofnanir í íslensku samfélagi þurfa líka að geta sinnt þessum verkefnum, átt sitt tengslanet og mætt á fundi. Það skiptir máli að mæta á fundi vegna þess að ef á reynir þá verða það pólitískar ákvarðanir sem raunverulega munu ráða hvað gerist. Það verða ekki samningsskuldbindingar og menn geta bent á eitthvað sem stendur í einhverjum pappírum einhvers staðar ef það er ekki pólitískur vilji til þess að gera eitthvað. Það er það sem mun ráða. Þá viljum við vera með sem sterkast orðspor og hafa lagt eitthvað til og vera verðugur bandamaður. Þannig að okkar alþjóðastefna er í raun okkar besta vörn. Og svo erum við með okkar heimavinnu til að tryggja viðnámsþrótt og áfallaþol og vera með innviði, samfélagslím og traust gagnvart grundvallarstofnunum. Við erum í mjög góðum málum að mörgu leyti en þurfum að vinna betur í öðru.