utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Í dag ræðum við nýútkomna skýrslu hæstv. utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál fyrir síðasta ár. Ég vil eins og aðrir hér taka undir orð um þakkir til hæstv. ráðherra fyrir metnaðarfulla vinnu og ekki síst þeim starfsmönnum ráðuneytisins sem við vitum að hafa sett mark sitt á þessa skýrslu. Hún er góð, hún er yfirgripsmikil og hún er veganesti fyrir okkur öll að átta okkur á flóknari heimi.
Við deilum ekkert um það að við höfum ekki þurft að kljást við jafn fjölbreyttar og flóknar áskoranir í utanríkismálum í fleiri áratugi. Það er kaldhæðnislegt að fagna hér 80 ára afmælislokum seinni heimsstyrjaldar en horfast samt í augu við að það ríkir ekki friður hér. Við sem sinnum málaflokknum finnum auðvitað til mjög mikillar ábyrgðar en um leið er jákvætt að finna fyrir því að a.m.k. íslenskur almenningur virðist bera almennt mikið traust til okkar. Hér á þingi ríkir að mér finnst almennt mikil pólitísk samstaða um helstu verkefni og hvað er mikilvægast og hvernig hægt er að gera sig gildandi á þessu sviði með ábyrgum hætti, og ég ætla að leggja áherslu á með ábyrgum hætti.
Við þingmenn sinnum alþjóðastarfi og mig langar til að koma aðeins inn á það. Ég veit að hér erum við að ræða um verkefni utanríkisráðuneytisins en þetta tengist. Vegna þess að hér er talað um mikilvægi þess að mæta á fund og gera sig gildandi og eiga í nánum samskiptum við þá sem eru í forsvari fyrir Ísland á alþjóðavettvangi þá eigum við, almennir kjörnir þingmenn, að taka þessa vinnu föstum tökum og fara út hnarreist og tala auðvitað með okkar pólitíska nefi en þó með íslenska hagsmuni að leiðarljósi. Þetta skiptir máli. Það hefur stundum verið litið á þetta sem einhvers konar tilgangslausan bitling fyrir þingmenn. Ég ætla alveg að segja að auðvitað eru þingmenn mismeðvitaðir um það hvað þeir eru nákvæmlega að fást við þegar þeir koma fram fyrir sína þjóð á erlendum vettvangi, en hér í skýrslunni er nefnilega gert grein fyrir því mikilvæga og fjölbreytta starfi sem utanríkisráðherra ber ábyrgð á. Það eru svo ótrúlega mikil sóknarfæri í að reyna að stemma okkur af, stilla okkur saman og búa til einhverja stefnumótun um það hvernig við vinnum þessa vinnu.
Samráð alþjóðanefnda þingsins við ráðuneyti í aðdraganda stærri sem smærri verkefna í alþjóðastarfi þingsins, það færi vel á því að búa til skýrari ramma fyrir okkur sem vilja vinna verkefnið til fulls. Ég var til að mynda á síðasta kjörtímabili fulltrúi í þingmannanefnd ÖSE og ég er núna í ýmsum nefndum í starfi mínu sem fulltrúi í utanríkismálanefnd og svo er ég líka formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, sem ég tek mjög alvarlega. Ég hef náð að búa mér til þétt persónulegt tengslanet víða um heim sem ég get leitað til þegar þörf krefur. Þetta viljum við byggja upp fyrir íslensk stjórnvöld í heild. Þeir sem á undan mér hafa talað hafa einmitt nefnt mikilvægi þess að vera með einhvern til að hringja í, sem er auðvitað bara það sem alþjóðastarf snýst um, að vita í hvern maður hringir. NP8-ríkin eru t.d. að tala þéttar saman, sem er vel. Diplómatísku samtölin, við skulum öll efla þau saman. Ég veit að hæstv. ráðherra tekur vel í þessa tillögu mína og ég hlakka til að eiga við hana samtal um það.
Forseti. Við eigum ekki her, við þurfum ekki að kaupa skriðdreka, þurfum ekki að eiga orrustuþotur. Við þurfum ekkert að hugsa út í vopnabúr, jarðsprengjur eða viðbragðsæfingar innanlandshersveita en það er hins vegar raunveruleiki nágrannaríkja okkar. Við eigum ekki að taka þessu sem gefnu og mig langar til að vitna í orð fyrrverandi utanríkisráðherra sem sagði hér í tilefni af sérstakri umræðu sem var efnt til í kjölfar ólögmæts innrásarstríðs Rússa snemma árs 2022:
„Við getum leyft okkur að vera þakklát fyrir herleysið en við eigum ekki að gorta okkur af því.“
Þessi orð voru sönn þá og eru það enn.
Okkur er tíðrætt um að við séum traustur bandamaður en það þýðir þá að við verðum að leggja okkar af mörkum. Þess vegna erum við að endurskoða íslenska varnarmálastefnu. Þess vegna erum við að gera gangskör að því að vera góðir gestgjafar, jafnvel bestu gestgjafar sem völ er á því að hér er verið að sinna loftrýmisgæslu. En við eigum að finna okkur fókus. Við eigum að finna okkur fókus sem gerir það að verkum að við getum skarað fram úr á einhverjum vettvangi sem varðar Ísland sérstaklega.
Hérna ætla ég t.d. að nefna fjölþáttaógnir og öryggi sæstrengjanna. Ég held að þetta séu klárlega mikilvægustu verkefni sem Ísland þarf að takast á við og vera ekki bara þiggjandi heldur fjárfesta í sinni tækniþekkingu, í sínu fagfólki, sem hefur sýnt sig að er á heimsmælikvarða. En betur má ef duga skal. Ég vil t.d. nefna netvarnaæfinguna Skjaldborg sem gert er grein fyrir í skýrslunni og við fylgdumst með hér í fyrra, sem var liður í mjög vel skipulagðri NATO-æfingu þar sem sett var á svið netárás. Þar vakna allir til ábyrgðar og það þýðir ekki að fara óæfður og óundirbúinn inn í það þegar — og ég segi þegar — áföllin dynja á.
Smáríki eins og Ísland hafa mjög mikilvægu hlutverki að gegna í alþjóðasamfélaginu. Þetta höfum við auðvitað heyrt áður en við verðum að segja þetta aftur og aftur. Við eigum ekki bara að vera lítil og þæg og veiða fisk, eins og einhver lét hafa eftir sér í ræðustól um daginn. Við erum nefnilega eins öflug og við viljum vera þegar við beitum röddinni af ábyrgð. Það hefur aldrei verið mikilvægara að standa með öðrum smáríkjum eða bara öðrum ríkjum en ég vil þó sérstaklega nefna til sögunnar Grænland sem er í sjálfu sér risi en þarf stuðning. Grænland þarf stuðning okkar. Ekkert um Grænland án Grænlendinga, við höfum heyrt þessu fleygt áður en samstaða okkar með þessum landfræðilega nánasta nágranna okkar er mjög mikilvæg. Við þurfum að leggja sanngjarnar línur og gagnkvæm virðing á alla bóga verður að vera uppleggið sama hvað. Ólögmætt innrásarstríð Rússa í Úkraínu og hryllingurinn í Palestínu á Gaza-svæðinu hefur gert okkur það ljóst að virðing fyrir alþjóðalögum virðist vera orðin óljósari ef ekki bara fara þverrandi og þá verða sterkar raddir að láta í sér heyra.
Um ástandið á Gaza og í Palestínu almennt vil ég þó segja að það er gífurlega dýrmætt að ríkisstjórnin er samstiga í sinni fordæmingu gagnvart þeirri stöðu sem komin er upp varðandi hindrun mannúðaraðstoðar inn á svæðið. Við getum talað af stolti um framgöngu íslenskra stjórnvalda sem hafa talað hástöfum fyrir mikilvægi þess að jafnvægi komist á sendingu gagna inn á svæðið og að vopnahlé komist á að nýju. Eins og rakið er í skýrslunni er þó ekki bara spenna á Gaza. Við nefnum hér Íran, Líbanon og ef við förum austar getum við nefnt landamæri Indlands og Pakistan. Staðan fyrir sunnan Sahara er óhugnanleg og ég gæti bara hreinlega haldið áfram í allan dag. Við erum ekki í stríði en við búum samt ekki við frið og óróleiki og átök á fjarlægum stöðum í heiminum geta haft áhrif á aðfangakeðju hingað til Íslands. Þess vegna skiptir viðnámsþróttur máli.
Áherslur á græn umskipti og loftslagsmál eru á undanhaldi á alþjóðavettvangi og við horfum upp á bestu vini okkar vígbúast með hætti sem við héldum að heyrði hreinlega sögunni til. Þess vegna verðum við að þétta samtalið á norræna sviðinu og þótt við höfum ekki nýtt vettvang eins og Norðurlandaráð til að taka skref í átt að sameiginlegum vörnum þá þurfum við og verðum að dýpka það samtal í nánu samráði við norræna leiðtoga. Þetta samtal tel ég algjört forgangsatriði og það er hluti af þeim áherslum sem lagðar eru til grundvallar í starfi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sem ég fer fyrir. Við óskum sem fyrr eftir nánu samráði við utanríkisráðherra í þær áttir og ég veit að það stendur til boða.
Forseti. Ríkisstjórnin hefur boðað til kosninga fyrir árslok 2027 um hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið skuli fram haldið. Þetta er gífurlega mikilvægt tækifæri til að hefja Evrópuumræðuna til vegs og virðingar. Við verðum að geta horft aftur um öxl, ekki reið yfir því hvernig fór heldur af æðruleysi og með skilningi á því að margt hefði verið hægt að gera betur. Við þurfum nefnilega að læra af reynslunni, byggja á þeirri metnaðarfullu vinnu sem unnin var af hálfu íslensku samninganefndarinnar á sínum tíma, fá fleiri hagsmunaaðila að borðinu en ekki einungis þá sem hafa gert upp við sig: já eða nei. Með því getum við tekið upplýstari ákvörðun um framtíðarsamband okkar við Evrópusambandið, hvernig sem það síðan verður. Það er nefnilega rökrétt og eðlilegt að öryggis- og varnarmál og umræða um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu sé dregin fram í samhengi við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég er þó þeirrar skoðanir að hugsanleg aðild Íslands að sambandinu sé fyrst og fremst efnahagslegs eðlis. Hérna snýst málið um fjölmarga aðra hagsmunaþætti sem eiga sér skírskotun í baráttu ýmissa aðila og vil ég nefna verkalýðshreyfinguna og launþegahreyfingar þessa lands og önnur hagsmunasamtök í ýmsum atvinnuvegum sem eru grundvallarstoðir íslensks efnahagslífs, sem ættu að láta sig málefnið varða með miklu afdráttarlausari hætti en gert hefur verið og ekki síst í ljósi aukinnar óvissu í alþjóðaviðskiptum. Síðast þegar Alþingi ákvað að leggja fjármagn til hagsmunasamtaka til að stuðla að vandaðri umræðu um Evrópusambandsaðild þá var áherslan sú að leggja fjármagn ýmist til hreyfinga sem fyrir fram studdu aðild og síðan til þeirra sem gerðu það ekki, voru fyrir fram andvíg. Þetta leiddi illu heilli að mörgu leyti til skautaðri umræðu en þörf var á og getum við gert betur. En margt annað hafði samt auðvitað líka áhrif, svo það sé sagt.
Við eigum svo mikið undir því að þessi atrenna sé fyrst og fremst bundin við möguleikana, ekki að við séum að setjast í spádómssætið, og að næsta vegferð Evrópusambandsumræðunnar byggist á því hverjir möguleikarnir séu og að hér séum við að ganga til samningaviðræðna en ekki bara ganga í Evrópusambandið. Þetta er þjóðaratkvæðagreiðslan sem átti alltaf að fara fram og við þurfum að byrja að undirbúa okkur. Það þýðir ekki að taka upp undirbúningsgögnin of seint inni í ferlinu, því að tíminn er fljótur að líða og ég hvet alla þá sem vettlingi geta valdið að fara að leggjast yfir hlutina.
Forseti. Ég hafði ætlað að fara yfir ansi margt hérna, m.a. þróunarsamvinnu og ýmsa þætti. Ég held að það sé æskilegt að við reynum hreinlega að efna til sérstakrar umræðu um þróunarsamvinnu þegar færi gefst og hverjar okkar helstu áskoranir eru í þeim efnum og hvernig við getum gert betur því að við viljum að sjálfsögðu gera vel. Í því sambandi langar mig til að ljúka þessari umræðu minni á hugtakinu traust. Oft er talað um að það sé norræna gullið. Forseti Finnlands, Alexander Stubb, lét hafa það eftir sér á vorþingi Norðurlandaráðs um daginn og það er hverju orði sannara. Það á við hér og það verður ekki til í neinu tómarúmi. Það þarf að vökva plöntur traustsins á hverjum einasta degi.
Við skulum jafnframt hafa á því skilning að það blasir ekkert alltaf við hvað er í veði fyrir Ísland og aðrar vinaþjóðir ef við förum ekki vel með það vald sem við höfum og þá rödd sem við eigum. Bæði er það ekki alltaf skýrt gagnvart almenningi að það sem kjörnir fulltrúar segja og gera er gert í ákveðnu samhengi og fólk á allan rétt á því að krefjast afdráttarlausrar afstöðu kjörinna fulltrúa stjórnvalda í málum sem skipta okkur ótrúlega miklu máli en við þurfum líka að eiga heildstætt samtal um það hvað það þýðir að vera viðbúin. Það þýðir ekki bara að vera óttaslegin við utanaðkomandi ógn eða einhver vond öfl. Fyrir okkur, fyrir Ísland, er alls ekkert gefið að óvinir Íslands séu að koma hérna og gera okkur lífið leitt. Þetta geta verið sjálfstæðir aðilar eins og hæstv. ráðherra fór yfir áðan í ræðu sinni.
Við erum hins vegar vel farin af stað í okkar vinnu í málaflokknum og ég fagna áherslum ríkisstjórnarinnar í málaflokknum. Við eigum mannauð og vilja til að skara fram úr í viðnámsþrótti og seiglu og vera rödd á heimsmælikvarða í alþjóðlegri ábyrgð. Við viljum öll frið, ekki bara herlausar þjóðir.