156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[18:37]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður hefur setið á þingi Norðurlandaráðs undanfarin ár. Þar hafa orðið gríðarlegar breytingar í allri umræðu á undanförnum árum. Sjálfur hef ég ekki setið þar en sé þetta af dagskrá þingsins, allri umræðu og áherslum. Ég fékk tækifæri til að ávarpa þing Norðurlandaráðs í Ráðhúsinu í október þar sem ég talaði fyrir hönd NATO-þingsins um þá stöðu sem er uppi.

Hvernig skynjar hv. þingmaður umræðu á þessum vettvangi sem snýr að þessu? Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að samstarfið sem snýr að NORDEFCO þróist á næstu árum í kjölfar þeirrar gjörbreytingar að Svíar og Finnar komu inn í NATO? Þá verður loksins hægt að ræða öryggis- og varnarmál sem höfðu ekki verið rædd að neinu marki fyrir þann tíma.

Síðan ef færi gefst: Hvernig færist þessi umræða út á Norður-Atlantshaf? Þá vil ég líka tala um Færeyjar og Grænland og svæðið upp að Beringshafi. Sá sem hér stendur hefur tekið þátt í NATO-þinginu og var þar í sjö ár. Þá var viðkvæðið að það væri engin umræða á þingi Norðurlandaráðs. Það væri áhugavert að heyra hvernig þessi umræða fer fram á þingi Norðurlandaráðs.