156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[18:40]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna og þakka fyrir allan fókus á Norðurlandaráð undir þessum lið. Ég vil reyndar byrja á því að leiðrétta hv. þingmann með því að segja að ég hef ekki setið í Norðurlandaráði undanfarin ár. Ég tók við þessum kaleik við upphaf þessa löggjafarþings og kem því sem nýgræðingur inn í samstarf í Norðurlandaráði.

Það var ekki að ástæðulausu að ég bar mig eftir þessu verkefni. Þetta er einfaldlega einhver mikilvægasti vettvangur sem við eigum til að hefja upp rödd öryggis- og varnarmála, sem þó hefur ekki haft þau verkefni í fókus til þessa. Ég vil hins vegar segja að hjólin hafa farið að snúast á undanförnum árum. Við sáum það á síðasta ári, þegar Ísland var í forsæti í þessu ráði, að yfirskriftin var „Friður og öryggi á norðurslóðum“. Hið sama er uppi á teningnum nú þegar yfirskriftin er „Seigla og viðnámsþróttur“. Þetta eru verkefni sem voru ekki á könnu Norðurlandaráðs fyrr en fyrir örfáum misserum.

Besti mælikvarðinn á það hvernig tónninn hefur breyst, og bestu manneskjurnar til að spyrja um það hvaða þróun hefur átt sér stað, það eru túlkarnir sem túlka fyrir okkur á þessum vettvangi. Þau vita allt. Ég ræddi aðeins við íslensku túlkana á síðasta þingi. Þau sögðu að það hefði verið rosalega merkilegt að fylgjast með því hvernig umræðan hefði að mjög miklu leyti snúist um nýsköpun, græn umskipti, orkumál, loftslagsmál og umhverfisvernd en farið að snúast um grá málefni, það hvernig við vígbúumst. Ég er á þeirri skoðun, og er ekki ein um það, að þetta þurfi ekki að vera andstæður vegna þess að varnarmál snúast, eins og hv. þingmaður veit, líka um græn umskipti.