utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Ég þakka svörin. Þetta var nefnilega þegar Bryndís Haraldsdóttir, okkar ágæti hv. þingmaður, leiddi Norðurlandaráð á síðasta ári sem forseti þingsins, þá var þetta einmitt um öryggismál á norðurslóðum. Núna er það seigla og viðnámsþróttur sem verið er vinna með á þessu ári, sem er nú mjög í anda og svolítið í beinu framhaldi af því sem hefur verið mikil umræða um. Ég hugsaði þegar hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kom með þetta — ég var nú ekki búinn að leggja þetta niður fyrir mér; seigla og viðnámsþróttur. En þarna erum við væntanlega bara með heimsmeistarana í Norðurlandaráði, sem eru Finnar, í akkúrat þessu; seiglu og viðnámsþrótti, vegna þess að á mínum ferðum á NATO-þingið til Finnlands varð maður satt að segja bara fyrir svolítilli hugljómun hvernig þeir hafa sinnt þessu í raun um áratugaskeið sem snýr að þessu. Það minnti mann svolítið á að það fór eiginlega fyrst að gerast hjá okkur eftir aðventustorminn í desember 2019 að við fórum taka þetta af meiri krafti heldur en áður. Og eftir innrás Rússa náttúrlega, innrásarstríðið í Úkraínu, þá vöknuðu Íslendingar enn frekar hvað þetta varðar. Þannig að þetta er áhugavert og það gengur allt út á þetta. Við sjáum líka að í skýrslu utanríkisráðherra er einmitt mikil áhersla lögð — og þar má sjá texta eða málsgrein úr áherslunum í NATO. Þar eru einhverjir sjö, átta punktar sem við erum í rauninni að ræða svolítið mikið um hérna heima núna hvernig við ætlum að takast á við. Hérna hefur umræðan kannski verið meira fjarskiptin, flutningskerfi raforku og þessir þættir, en seigla og viðnámsþróttur skal það vera.