156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[18:44]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, það er ástæða til að taka undir það með hv. þingmanni. Ég vil bara koma því á framfæri, vegna þess að ég hafði ekki tök á því að gera grein fyrir því í fyrra andsvari um hlutverk okkar í varnarmálatengdum málum innan Norðurlandaráðs, að NORDEFCO hefur haft svona aukavettvanga í tengslum við þemaþingið og var það nú síðast í Helsinki í Finnlandi þar sem við vorum einmitt að ræða seiglu og viðnámsþrótt. Það var svolítið merkilegt, án þess að ég geri svo sem neitt „grundigt“ grein fyrir þeim samtölum sem ég átti við marga háttsetta aðila í varnarmálanefndum þjóðþinga Norðurlanda, að það blasir ekkert endilega við þeim hvernig Íslendingar geta lagt sitt af mörkum á þeim vettvangi, svo ég orði það mjög pent. Nú þurfum við svolítið að gera öðrum þjóðum grein fyrir því hvað við stöndum fyrir, að við séum ekki þiggjendur og höfum efni á því sem lítil þjóð að kaupa svona mátulega mikið af — nei, ekki kaupa, mér finnst nú ósanngjarnt að segja það, en vera gestgjafar í heræfingum og reyna að gera það vel. Og við þurfum við að bjóða og leggja eitthvað á borðið sem heitir sérþekking.

Seigla og viðnámsþróttur, já, mér finnast t.d. áherslur sem lúta að fjarskiptaöryggi og sæstrengjum borðleggjandi. Mér finnst það liggja beint við. Ég er ekki fyrsta manneskjan sem fær þá hugmynd að gera það að einhvers konar séríslensku framlagi. Ég vona og ég veit bara út frá þeirri umræðu sem við höfum áður átt hérna inni á þessu þingi um t.d. tilflutning CERT-IS yfir til utanríkisráðuneytisins að við erum stórhuga í þessum efnum. Það verður vonandi fjallað betur um þetta í nýrri varnarmálastefnu fyrir Ísland sem við eigum von á. En við þurfum að sýna öðrum þjóðum svolítið fyrir hvað við stöndum og hvert við ætlum að fara.