utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Þetta er heilmikil skýrsla og yfirgripsmikil sem liggur hér fyrir okkur þingmönnum að lesa og ekki hægt í stuttri ræðu að fara yfir öll efnisatriði. Það er margt sem maður hefði áhuga á að ræða. Ég veit að almenningur hefði kannski mestan áhuga á að ræða hér fjölda sendiráða og starfsmanna þeirra og kostnað við rekstur sendiráða úti um alla heimsbyggðina. Ég hefði svo sem haft gaman af því að lesa upp úr því og reifa aðeins þá starfsemi í utanríkisþjónustu Íslands. Hún er ekki hafin yfir alla gagnrýni, þ.e. rekstur sendiráða og hvernig þeim er raðað niður um heiminn. Ég nefni hér sendiráð í Afríku t.d., þrjú sendiráð þar, í Freetown, Kampala og síðan er þriðja sendiráðið í Afríku í Malaví. Það er svo sem gott yfirlit í þessari skýrslu um hagsmuni Íslands á öllum þessum stöðum þar sem sendiráð okkar eru rekin. Það má auðvitað sjá það að í Afríku eru hagsmunir Íslands hverfandi. Það væri réttmæt spurning, og ég trúi ekki öðru en að utanríkisþjónustan þurfi að svara henni og velta henni fyrir sér af og til, hvort það sé réttlætanlegt að halda úti þessum sendiráðum þegar hagsmunir Íslands liggja miklu meira annars staðar og okkur nær. Ég játa þó að það fer fram auðvitað heilmikið þróunarsamvinnustarf á kostnað íslenskra skattgreiðenda í Afríku og það er væntanlega með vísun í það sem menn réttlæta að reka sendiráð þar ofan í allt það saman. Mig grunar nú að hægt sé að hafa eftirlit með þeim fjármunum sem við sendum til Afríku í þetta þróunarstarf með öðrum hætti en með rekstri sérstakra sendiráða með tilheyrandi starfsmannafjölda, útsendu starfsfólki, þremur á hverjum stað og síðan staðaráðnu fólki. Þetta er eitthvað sem ég beini til hæstv. utanríkisráðherra að skoða ætíð. Ég bendi sérstaklega í þessu samhengi á t.d. Bandaríkin þar sem ég myndi nú halda að hagsmunir okkar færu vaxandi af því að vera með diplómatísk tengsl og haldið sé til haga hagsmunum Íslands þar, það sé ríkari þörf á því þar heldur en oft áður og víðar. Þetta er sem sagt einn hluti af þessari skýrslu. Ég ætla ekki að fara ofan í það meira í þessari ræðu hér.
Ég greini það í máli hv. þingmanna og hæstv. ráðherra og fyrrverandi ráðherra sem hafa farið með málaflokkinn að það er samhljómur með mönnum að Ísland þurfi að vera, eins og það er kallað, þjóð meðal þjóða. Ég veit ekki almennilega samt hvað það þýðir en menn virðast vilja draga þá ályktun af þeirri fullyrðingu að það þýði að menn þurfi að hafa skoðanir á öllum hlutum sem gerast alls staðar í heiminum, kæra sig inn í öll ágreiningsmál og senda peninga sem víðast og jafnvel, eins og síðasta ríkisstjórn gerði, að tala fyrir vopnakaupum til að styðja við stríðandi aðila á ákveðnum svæðum. Ég er í sjálfu sér ekki sammála þessari nálgun. Ég tel að Ísland eigi að fara varlega í það og geti með fullu verið þjóð meðal þjóða, og ég held að það dragi það enginn í efa að Ísland er þjóð meðal þjóða án þess að menn þurfi, eins og ég nefndi, að kæra sig inn í öll mál.
Mig langar að nefna bara örfá atriði úr þessari skýrslu sem eru kannski þessu tengd. Mér finnst mjög einhliða málflutningur um ástandið á Gaza. Ég ætla samt sem áður að taka fram að ég ætla ekki að kæra mig inn í þau átök þó að ég nefni þau í ræðu, en þau hafa bara borið á góma hér. Og ég hefði ekki gert það hefði ég ekki séð á heimasíðu Stjórnarráðsins 9. maí, fyrir nokkrum dögum, tilkynningu um að Ísland hafi skilað inn greinargerð til Alþjóðadómstólsins í Haag sem var óskað eftir af Sameinuðu þjóðunum. Í tilkynningu ráðuneytisins er tekið fram að þetta sé í fyrsta sinn sem Ísland skilar slíkri greinargerð eitt og sjálfstætt en ekki í samfloti með öðrum ríkjum. En þetta varðar sem sagt skyldur Ísraels gagnvart Palestínu, palestínskum svæðum. Greinargerðina má finna á heimasíðu ráðuneytisins og þar kemur fram að það hafi verið óskað eftir þessu á einhverjum stórum fundi hjá Sameinuðu þjóðunum, að ríki myndu senda inn slíka álitsgerð ef þau svo kysu. Það var 20. desember 2024. Ísland skilaði þessari greinargerð í febrúar á þessu ári, ég er ekki með dagsetninguna nákvæmlega en ef ég man það rétt var það í febrúar á þessu ári. Frá þessu er ekkert greint í skýrslu hæstv. utanríkisráðherra og mér er til efs að um þetta hafi verið fjallað eða þetta hafi verið kynnt í hv. utanríkismálanefnd. Ég geri athugasemdir við það í máli af þeim toga sem hér um ræðir, þessum miklu átökum, ömurlegu átökum í Ísrael, að ef stjórnvöld ákveða einhvern veginn að kæra sig inn í þau með einum eða öðrum hætti þá sé það ekki kynnt utanríkismálanefnd og ég hefði talið fullt tilefni til að kynna þinginu það almennt. Það hefði mátt gera með einhverjum hætti öðrum.
Hér hafa fallið stór orð í fordæmingu á Ísrael fyrir að vilja ekki styðja við hjálparsamtök á vegum Sameinuðu þjóðanna, UNRWA, sem voru stofnuð 1949 og áttu að vera tímabundin samtök en hafa svo rækilega fest sig í sessi að þau eru farin að reka allt og hvaðeina á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum reyndar líka og hafa með höndum menntun á Gaza. Það er rétt að halda því til haga að löngu fyrir hryðjuverkaárásirnar hryllilegu 7. október 2024, löngu fyrir þann tíma, hafa Ísraelsmenn gagnrýnt mjög harðlega UNRWA fyrir öryggisbresti á svæðinu, fyrir að auka á ógn á þessu svæði og fyrir innrætingu í skólakerfinu og hvað veit ég. En allt að einu hafa ríki viljað gera það, og gerðu það held ég nánast umhugsunarlaust eftir hryðjuverkin 7. október, að dæla meira fé í þessi samtök og án þess kannski að hugsa hvort með því að sleppa því en huga að öðrum hjálparsamtökum, sem voru feikimörg á Gaza-svæðinu og hafa verið, hefði mátt komast kannski hjá stigmögnun átakanna. Það hefði kannski mátt komast hjá því ef ríki heims og Sameinuðu þjóðirnar hefðu nú kannski dregið úr þessum stuðningi sínum við UNRWA en beint fé og öðrum gögnum í önnur hjálparsamtök. Það hefur sérstaklega í kjölfarið komið upp ásökun um að starfsmenn UNRWA hefðu tekið þátt í hryðjuverkunum 7. október. Það hefur verið staðfest að hluta. Ásakanir hafa verið uppi um að skólastjórar á vegum samtakanna séu Hamas-liðar eða tengist hryðjuverkasamtökum Hamas og þar fram eftir götunum. Mér hefur svolítið þótt skorta á ákveðna innsýn í þessi átök og að menn leiti leiða til þess að hella ekki olíu á þann eld sem þarna brennur. Menn hefðu svo sannarlega átt að horfa til þess, held ég, og eru að gera það, Bandaríkjamenn núna með sérstökum samtökum, að stofna sérstök samtök til að safna fé til að styðja mannúðarstarf sem menn vilja að verði hafið yfir allan vafa að tengist ríkjandi stjórnvöldum á Gaza-svæðinu.
Frá mínum bæjardyrum séð finnst mér skorta á að íslensk stjórnvöld tali fyrir því að kannski væri einfalt að leysa, kannski ekki deiluna alla en það hryllilega ástand sem ríkir á Gaza ef Hamas-liðar, hryðjuverkasamtökin sem þar ráða lögum og lofum og ráða öllu, myndu sleppa þessum gíslum sem eftir eru. Það er tekið fram í skýrslu hæstv. utanríkisráðherra að Ísland hafi svo sannarlega í upphafi verið með ákall um að hryðjuverkasamtökin frelsuðu gíslana, strax í upphafi. Ég verð að segja það og ég hef nefnt það áður að mér fannst kannski viðbrögð frá íslenskum stjórnvöldum eftir hryðjuverkin 7. október, vera svona — menn voru heldur rólegir í tíðinni, svona miðað við marga aðra viðburði sem íslensk stjórnvöld á alþjóðavettvangi hafa hlaupið til að álykta um eða tjáð sig um. Þó kom þetta ákall fram en það hefur farið lítið fyrir því og mér hefur fundist vanta á það, sérstaklega í ljósi þess að hryðjuverkasamtökin hafa verið að frelsa einn og einn gísl en ekki alla. Það á auðvitað að gera skilyrðislausa kröfu um það að gíslunum verði sleppt og þá er hægt að fara að huga að öðrum málum þarna.
Það væri reyndar líka áhugavert að heyra hvaða afstöðu hæstv. ráðherra utanríkismála hefði núna til þeirrar tveggja ríkja lausnar sem menn svo glatt tala um nú um stundir, að menn styðji tveggja ríkja lausnina. Hér á Íslandi er vísað í þingsályktunartillögu sem Alþingi samþykkti árið 2011 um að viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Ég hygg nú að hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki samþykkt þá þingsályktunartillögu, svo sannarlega hefði ég ekki gert það hefði ég setið á þinginu á þeim tíma. Fyrir því að gera það ekki voru málefnaleg rök og ég vísa bara til nefndarálits minni hluta hv. utanríkismálanefndar frá þeim tíma. Hann færði fyrir því málefnaleg rök að það væri alls ekki tímabært að viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Jafnvel þó að við styddum öll tveggja ríkja lausn með einum eða öðrum hætti þá var á þessum tíma ekki tímabært að gera það enda er Ísland eitt fárra ríkja sem hefur gert það. Nú blasir við að menn þurfa kannski að velta því fyrir sér hvort menn geti áfram verið að vinna með þetta hugtak, tveggja ríkja lausn eða sjálfstæða Palestínu eins og staðan er í dag, eins og ástandið á Gaza er. Ég get ekki ímyndað mér að þar verði hægt að búa næstu árin þótt vissulega með hjálp stórvelda verði hægt að gera stórátak í að byggja þarna upp lífvænlegt samfélag eins og svo sem menn hafa átt fyrir löngu að vera búnir að gera, hefðu menn sem þarna stjórna borið einhverja gæfu til þess eða haft einhvern minnstan áhuga á því að gera Gaza-svæðið byggilegt og íbúum þess lífið létt með tilheyrandi lífskjörum vegna þess að svæðið sjálft er gósensvæði við Miðjarðarhafið og gæti verið dásamlegt að búa þar hefðu menn gæfu til þess að hafa það markmið.
Ég hef punktað hjá mér líka að það kemur fram í skýrslunni að 10. maí árið 2024 ályktaði Ísland ásamt öðrum ríkjum hjá Sameinuðu þjóðunum um að Palestína fengi heimild til frekari þátttöku í störfum Sameinuðu þjóðanna. Mönnum fannst liggja mjög mikið á þessu stuttu eftir hryðjuverkin. Ég hlýt að spyrja auðvitað: Hefur það borið árangur? Þetta var samþykkt af öllum þorra ríkja sem þarna sátu. Hefur þetta borið árangur? Hefur þetta orðið til þess að lægja einhverjar öldur á þessu svæði eða gera íbúum á Gaza einhvern greiða?
Tíminn líður hér, ég átta mig ekki á hvort ég á eftir eina mínútu eða fimm. En mig langar að nefna það hér að Úkraína hefur líka verið til umræðu og er gerð skilmerkilega grein fyrir aðkomu Íslendinga að því. Það er vísað í þingsályktunartillögu frá því í fyrra þar sem var gert ráð fyrir að Ísland kæmi að langtímauppbyggingu í Úkraínu og Úkraína í raun sett á íslensk fjárlög. Árið 2025 er gert ráð fyrir 3,6–4 milljörðum. Ég sé reyndar í skýrslunni að það er gerður fyrirvari við þessa tölu og gert ráð fyrir að fjárhæðin verði töluvert umfram 4 milljarða, sem þó er gert ráð fyrir í fjárlögum. (Forseti hringir.) — Á ég ekki fimm mínútur sem talsmaður flokksins, varð hér breyting á mælendaskrá? (Gripið fram í.) Þá kemst ég bara ekki lengra og sæti þeim tímamörkum þingsins.