utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Það er eitt og annað sem vekur mann til umhugsunar eftir þessa ræðu, hvort þingmaðurinn sé þá að endurspegla skýra stefnu Miðflokksins þegar kemur að þróunarmálum, þegar kemur að þróunarsamvinnu, þegar kemur að ástandinu á Gaza, þegar kemur að Úkraínu. Ég hefði gjarnan viljað fá þessar fimm mínútur sem þingmaðurinn var að kalla eftir af því, af því að mér heyrðist þingmaðurinn, og þá leiðréttir þingmaðurinn mig bara, vera að fara að lýsa yfir efasemdum um að við ættum að vera að styrkja Úkraínu. Þá erum við bara í grundvallaratriðum ósammála því að ég tel að með öryggi Úkraínu séum við að tryggja öryggi Evrópu og ég held að heimóttarskapur eins og birtist hér áðan sé stórhættulegur frelsi, friði og mannréttindum í álfunni og ekki í samræmi við stefnu Íslands alveg allt frá lýðveldisstofnun.
Mér finnst að það þurfi að efla m.a. sendiráðið í Washington. Við erum með gríðarlega öflugt fólk þar en við erum sérstaklega að skoða það einmitt í ljósi aðstæðna núna að staðráða sérfræðing inn í ráðuneytið, inn í sendiráðið til þess einmitt að efla okkar hagsmunagæslu. Ég hef margoft sagt að samskipti okkar við Bandaríkin eru góð, þau eru mikilvæg og sterk og við ætlum að tryggja að svo verði áfram. En ég vona að það sé ekki þannig að ég greini svona mikla andúð af hálfu hv. þingmanns að það megi ekki byggja upp enn frekari styrkleika í okkar sendiráðum, okkar hagsmunagæslu, þegar til að mynda 70% af vöruviðskiptum og útflutningi á þjónustu fer til Evrópusambandsins og Evrópuríkja. Það er gríðarlega mikilvæg markaðsstaður fyrir okkur.
Ég ætla að koma að bæði þróunarsamvinnu og Gaza hér á eftir. Ég held að ég þurfi ræður en mig langar að fá þá skoðun fram og bara að hv. þingmaður upplýsi okkur þingheim varðandi afstöðu Miðflokksins til Úkraínu og framlaga til Úkraínu og hvort Ísland eigi ekki að standa við þær skuldbindingar sem við samþykktum, til að mynda á leiðtogafundi NATO-ríkjanna á síðasta ári í Washington.