utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Það liggur fyrir að formaður Miðflokksins og einn þingmaður til, þingflokksformaður, sátu hér á þingi á síðasta kjörtímabili. Það gerði ég ekki. En ég veit ekki betur en að þeir hafi, ásamt öllum öðrum þingmönnum, samþykkt þingsályktunartillögu um stuðning við Úkraínu í því formi sem hún var kynnt með þingsályktunartillögunni. Ég bendi hins vegar á það, svona fyrir utan það að ég tel að öll mál sem allir hv. þingmenn eru sammála um kalli á einhvers konar nánari skoðun, að það virðist vera fullkomlega ófyrirséð hvernig þessi kostnaður fyrir íslenska skattgreiðendur muni reynast í framtíðinni þegar það er meira að segja í nýútgefinni skýrslu ekki hægt að fullyrða um annað en það að fjárframlögin verði hærri en fjárlögin segi til um, fjárlögin sem búið er að samþykkja. Þannig að mér finnst enginn bragur að því ef menn ætla í fjárframlögum til annarra ríkja að fara yfir það sem þingið samþykkir. Þannig hefur það verið undanfarin ár að það hafa verið samþykkt fjáraukalög til að auka við framlagið. Mér finnst að sjálfsögðu eðlilegt að við stöndum öll með Úkraínu í þeirra stríði. Nú hafa aðstæður hins vegar breyst og ég veit ekki betur en að Úkraína hafi gert samning við Bandaríkin um verulega uppbyggingu og greiðslur til Bandaríkjanna af vinnslu á alls konar málmum og maður veit ekkert hvernig það þróast. En í þessu ljósi þurfa ríki auðvitað að horfa á málin þegar þau ætla að samþykkja, að því er virðist, opinn tékka eða fjárheimildir á eigin fjárlögum til margra ára, til fimm ára eða lengur fram í tímann til annars ríkis. Mér finnst lítill bragur að því og ég frábið mér að þetta sé kallaður heimóttarskapur eða reynt að gera því skóna að þar með styðji maður ekki Úkraínu í sínu varnarstríði.