utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Ég hef enga sérstaka sýn eða lausn á átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Hæstv. utanríkisráðherra verður bara að virða mér það til vorkunnar að ég ætla ekki að kæra mig inn í öll ágreiningsmál og öll stríðsátök í heiminum. Ég tel eðlilegt að Ísland sé í samstarfi við önnur ríki um margt og við tökum þátt í alþjóðasamstarfi víða, en mér finnst ekki nauðsynlegt að Ísland leggi til lausnir eða haldi að það geti leyst deilu eins og þessa með digurbarkalegum, hástemmdum yfirlýsingum hér í þessum þingsal eða annars staðar.
Ég er hins vegar fegin því að heyra að hæstv. ráðherra telur það skilyrði að gíslunum sé sleppt. Þá hlýt ég að spyrja — og ég lít á það þannig að hún telji það skilyrði fyrir áframhaldandi uppbyggingu á Gaza að gíslunum sé sleppt. Og það er einmitt það sem ég var að nefna, að gíslunum sé sleppt en það sé ekki dælt fé í UNRWA, sem Ísraelsmenn hafa með rökum, og Sameinuðu þjóðirnar samþykkt, bent á að er öryggisógn á svæðinu. Mér finnst það ábyrgðarhluti að dæla milljónum af skattfé Íslendinga inn í slík samtök þegar önnur samtök eru til staðar, svo sem eins og Rauði hálfmáninn, svo sem eins og stofnunin sem Bandaríkjamenn eru að setja á laggirnar og þar fram eftir götunum. Það er mitt svar við þessu. Ég er bara fegin að heyra það að hæstv. utanríkisráðherra er sammála mér í því að það sé skilyrði að gíslunum sé sleppt, en það hefur bara verið bið á því og þeim hefur ekki enn þá verið sleppt.