156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:13]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegi forseti. Í dag ræðum við eitt af mikilvægustu skjölum Alþingis þegar kemur að stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna, skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál. Það er ekki sjálfsagt að smáríki eins og Ísland eigi sér rödd sem heyrist í alþjóðakerfinu en í skýrslunni birtist skýr og ákveðin sýn; að Ísland taki þátt í að móta stefnu og lausnir í alþjóðlegu samhengi og standi með friði, frelsi og mannréttindum og alþjóðalögum á umbrotatímum.

Skýrslan varpar ljósi á stöðu Íslands í breyttu alþjóðlegu umhverfi þar sem áskoranir tengdar öryggi, mannréttindum, viðskiptum og alþjóðalögum kalla á skýra stefnu og samstillt viðbrögð. Hún dregur fram helstu áherslur Íslands á sviði öryggis, þróunarsamvinnu, utanríkisviðskipta og mannréttinda og undirstrikar mikilvægi þess að Ísland axli ábyrgð og taki virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. Það er hlutverk okkar að standa með þeim grundvallarreglum sem alþjóðalög og samstarf okkar byggist á. Ísland hefur, líkt og fjöldi annarra ríkja, veitt Úkraínu stuðning í ljósi innrásar sem gengur gegn fullveldi og sjálfsákvörðunarrétti. Þessi stuðningur snýst ekki aðeins um að aðstoða einstakt ríki heldur um að standa vörð um þau meginviðmið sem eiga að tryggja frið og stöðugleika í Evrópu. Skýrslan dregur einnig fram mikilvægi þess að endurmeta stöðu Íslands í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á öryggisumhverfi okkar. Þetta felur ekki í sér stefnubreytingu í átt til aukins hernaðar heldur að Ísland sýni ábyrgð og styrki samvinnu sína við þá öryggis- og varnarsamstarfsaðila sem við höfum treyst á í gegnum tíðina, svo sem Atlantshafsbandalagið, Norðurlöndin og Evrópusambandið. Við viljum tryggja að Ísland sé í stakk búið til að mæta nýjum áskorunum með yfirvegun og raunhæfum aðgerðum í takt við okkar stærð, staðsetningu og gildismat.

Ísland hefur ávallt haft hagsmuni af opnu og reglubundnu viðskiptaumhverfi. Skýrslan endurspeglar mikilvægi fríverslunarsamninga og stöðugs samstarfs við helstu bandalagsríki, einkum á vettvangi EFTA og EES. Það er í okkar hag að vinna áfram að því að rýmka aðgang að mörkuðum, treysta tengsl við nágrannaþjóðir og tryggja fyrirsjáanleika fyrir íslensk fyrirtæki.

Á sama tíma og þróunarsamvinna hefur víða átt undir högg að sækja hefur Ísland haldið áfram að rækja sínar skuldbindingar á því sviði. Okkar þátttaka skiptir máli, bæði sem tákn um ábyrgð og sem liður í að byggja upp öryggi og stöðugleika á alþjóðavettvangi. Jafnframt hefur Ísland lagt áframhaldandi áherslu á mannréttindi, bæði í gegnum setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og með viðbrögðum við ástandi þar sem mannréttindi eru brotin. Slík afstaða er í samræmi við þau grunngildi sem móta utanríkisstefnu Íslands og hefur einkennt þátttöku okkar á alþjóðavettvangi um árabil.

Virðulegi forseti. Skýrslan sýnir að Ísland velur leið ábyrgðar í utanríkis- og alþjóðamálum, leið samstarfs, festu og skýrrar afstöðu þegar kemur að grundvallargildum. Ég fagna skýrslunni og þeirri stefnu sem þar birtist og tel hana mikilvægt innlegg í umræðuna um framtíð Íslands í alþjóðlegu samhengi.