utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér skýrslu utanríkisráðherra um alþjóðamál og það er svo sannarlega af miklu að taka, mikið sem gengur á í heiminum í dag. Það má segja að hann sé talsvert viðsjárverðari heldur en hann var bara fyrir fáeinum árum og kemur þar margt til en fyrst og fremst auðvitað vaxandi stríðsátök víða. Síðan með nýjum stjórnarherrum hingað og þangað þá hefur umræðan orðið talsvert, eigum við að segja að hún sé minna yfirveguð en við höfum áður þekkt þegar við ræðum um alþjóðamál og varnar- og öryggismál. Hérna blandast auðvitað inn í öll þessi átök, hvort sem er í Úkraínu, Gaza eða annars staðar í heiminum, sú staðreynd að það eru vaxandi ógnir frá ríkjum sem sannarlega deila ekki okkar gildum um lýðræði og mannréttindi, virðingu fyrir alþjóðalögum. Afleiðingin er síðan sú að öll ríki heims kappkosta nú að tvöfalda eða margfalda framlög sín til varnarmála, auka birgðir af hergögnum, fjármunir sem fara sannarlega ekki í að byggja upp samfélögin hringinn í kringum heiminn í löndunum þótt þau þurfi sannarlega á því að halda, og byggja upp þvílíkt vopnabúr að maður getur spurt sig til hvers það sé þegar vopnabúrin eru orðin með þeim hætti að það er hægt að granda öllum á jörðinni nokkrum sinnum.
Við vitum hins vegar, því miður, að þannig er einfaldlega lífið, að tilgangurinn er sá að búa til fælingarmátt til að menn ráðist ekki hver á annan. Við sem búum við okkar sérstöðu, verandi herlaus þjóð og friðelskandi og talsmenn mannréttinda, jafnréttis og friðar, verðum auðvitað að halda áfram á þeirri vegferð. En um leið verðum við líka að virða þær kröfur sem bandamenn okkar og samstarfsaðilar gera til að byggja upp það sem við getum byggt upp í okkar landi. Við verðum að taka þessa umræðu miklu meira og dýpra í samfélaginu heldur en við höfum gert um þá staðreynd að heimurinn er viðsjárverðari og þó að það sé næsta ólíklegt og útilokað að hingað verði ráðist með einhvern her og við þurfum að upplifa það sem því miður allt of margar aðrar þjóðir upplifa, þá steðja þær fjölþáttaógnir sem steðja að öllum heiminum einnig að Íslandi. Við vitum það og margir vita það að á hverjum degi eru gerðar hér netárásir á fyrirtæki og stofnanir eða verið að kanna hversu góðar varnir við erum með. Það er eitt af því sem við þurfum að sinna.
Ég ætla því að velja það í þessari ræðu minni að ræða um þessa geópólitísku stöðu svolítið og breytingar, öryggi, norræna samvinnu, þetta nýja valdakerfi, raunsæi þess að vera smáríki og síðan kannski koma aðeins inn á áfallaþol hérna heima sem við þurfum að sinna. Fullveldið er það sem við þurfum að tryggja með öllum hætti, það er held ég frumskylda allra stjórnvalda og þjóða og að reyna að tala fyrir friði og tryggja frið með vinnu í samvinnu við bandalagsríki okkar og norrænni samvinnu.
Virðulegur forseti. Stríðsátökin í Úkraínu, óvissan fyrir botni Miðjarðarhafs og hernaðarumsvif stórvelda hérna á norðurslóðum minna okkur dag hvern á að fullveldi og frelsi eru ekki óumbreytanlegar staðreyndir heldur verkefni sem þarf sífellt að vinna að. Við í Framsókn leggjum höfuðáherslu á að verja fullveldi Íslands, standa vörð um frið og efla samvinnu við og með bandalagsríkjum sem deila með okkur sömu grundvallargildum. Þannig vil ég aðeins fjalla í dag um það hvernig við með skýrri stefnu, öflugri norrænni samvinnu, virku hlutverki innan NATO tryggjum öryggi Íslands og vörn gegn þeim fjölþáttaógnum sem við blasa.
Við horfum upp á nýtt alþjóðlegt valdajafnvægi þar sem háþróuð tækni, hernaðaryfirburðir og upplýsingar ekki síst vega jafnt á metunum. Ógnarstjórnir, sem eru ekki lýðræðisríki, reyna hins vegar að veikja burðarása alþjóðalaga. Rangfærslur dreifast með leifturhraða í gegnum samfélagsmiðla og netárásir geta lamað samfélög á örfáum klukkutímum. Í þessu umhverfi reynir á hvort smáríki geti látið rödd sína heyrast. Við í Framsókn teljum að svarið við þeirri spurningu sé skýrt já, þ.e. ef við stöndum saman með bandamönnum okkar, styrkjum eigin þekkingu, getu og eflum okkur í því, nýtum sérstöðu okkar á sviðum eins og þekkingu á netöryggi og eins stöðu okkar landfræðilega og netöryggi. Vopnlaus þjóð er ekki veik ef hún hugar vel af varnarsamstarfi.
Aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru hornsteinar í öryggi Íslands og bara sem dæmi um að við erum virkir þátttakendur á þessu sviði þá tóku íslenskir sérfræðingar í fyrra, árið 2024, þátt í stærstu netvarnaræfingu bandalagsins, Locked Shields, ég held að hún sé kölluð Skjaldborg á íslensku, og stóðu sig þar með mikilli prýði. Með því sýnum við að framlag smáríkis getur verið sértækt en það getur líka verið árangursríkt. Sú staðreynd að við höfum nú fært CERT-IS yfir til utanríkisráðuneytisins er einn liður í því að átta okkur á því að það er eitt af því sem skiptir okkur öllu máli á sviði varna.
Við höfum líka á liðnum árum lagt allt kapp á að uppfæra innviði á Keflavíkurflugvelli þannig að bandamenn geti brugðist hraðar við ef á þarf að halda. Þetta er ekki bara fjárfesting í flugskýlum eða radarkerfum eða öðrum mannvirkjum. Þetta er fjárfesting í trausti og fælingarmætti, í því að við séum trúverðugur bandamaður. Með inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATO hefur norræna öryggisnetið breyst úr, getum við sagt, lauslegu bandalagi í skipulagða heild innan NATO. Norrænt samstarf skiptir hins vegar gríðarlega miklu máli þar til viðbótar og leggst við og hefur alltaf verið okkur mjög mikilvægt. NORDEFCO Vision 2030 felur í sér að Norðurlöndin standi saman um varnir, æfingar og aðgerðaáætlanir og er Ísland þrátt fyrir herleysi ómissandi hlekkur í þeirri keðju. Landfræðileg staða okkar í Norður-Atlantshafi hefur sennilega aldrei verið mikilvægari þar sem til að mynda allar flugsveitir bandalags þurfa að nýta Ísland sem viðkomustað, okkur til varnar og þeim einnig. Hafið í kringum okkur er stórt og þar höfum við verið að eflast og þurfum að efla okkur enn betur. Við höfum verið að leggja til flugtaksbrautir, hafnaraðstöðu og allt það sem gistiríki þarf að eiga og hafa til að geta boðið upp á mannsæmandi aðstöðu fyrir þá sem hingað koma til þess að fylgjast með og hafa eftirlit en líka ef til alvarlegra átaka kæmi. Við höfum ekki síst boðið upp á pólitíska samstöðu sem mér hefur heyrst svona meira og minna í gegnum tíðina og ekki síst í dag vera mikilvæg. Það gerir bandamönnum okkur kleift að vernda okkar sameiginlegu gildi þegar við erum með pólitíska samstöðu um mikilvægi þess.
Varnarsamstarf er aðeins virkt ef innviðir heima fyrir standast álag. Við í Framsókn höfum lagt fram skýr áform á liðnum árum um að efla netöryggissveitina CERT-IS. Við höfum talað um og við þurfum að efla enn frekar bæði Landhelgisgæsluna og lögregluna. Við þurfum að tryggja að Neyðarlínan og dreifikerfi orkukerfisins sem og annarra innviða þoli netárásir og náttúruvá. Við þurfum að horfa til fæðuöryggis og þeirrar staðreyndar að það geta komið upp aðstæður þar sem reynir á slíkt. Allt þetta er hluti af þjóðaröryggisstefnu sem þarf að uppfæra sem fyrst svo að hún fangi nýjar ógnir eins og gervigreindarhernað, upplýsingaóreiðu og óbeinar efnahagslegar refsiaðgerðir. Það er með öðrum orðum margt sem við getum gert til að styrkja innviði okkar. Krafan í heiminum, innan NATO, er að menn setji allt að 1,5% af landsframleiðslu til þessara hluta. 1% af landsframleiðslu er í dag um 4,5 milljarðar þannig að við erum að tala um verulegar fjárhæðir, sennilega eitthvað nær 7 milljörðum í dag sem eiga eftir að vaxa þegar landsframleiðslan vex. Þetta eru verulegir fjármunir en það eru líka verulegir hlutir sem við getum farið í að gera sem styrkja líka innviði okkar, fyrst og fremst þegar um borgaraleg not er að ræða. Við vonumst auðvitað til þess fyrst og fremst að það komi aldrei til þess að það þurfi að nota þá í hernaði eða eitthvað slíkt en hins vegar þurfa þessir innviðir að vera til taks.
Virðulegi forseti. Við höfum lagt áherslu á mannréttindi og mannréttindi eru ekki hluti af mjúku málunum heldur er það viðfangsefni sem varðar traustan grunn alþjóðlegra laga og reglna. Ísland var kjörið í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna 2024–2027 og myndum við í Framsókn vilja nýta þann tíma til að krefjast ábyrgðar vegna stríðsglæpa, styðja réttindi kvenna, barna og hinsegin fólks. Með því sýnum við að smáríki getur mótað alþjóðlega umræðu og dregið skýr mörk gegn valdbeitingu hinna stóru.
Virðulegi forseti. Öryggi okkar hvorki hefst né endar á herafla. Það hefst á festu í meginreglum, í trausti í samskiptum og seiglu í innviðum og, þegar eitthvað bjátar á, að sýna fram á að við getum hreinlega tekist á við verkefnin. Við höfum gert það margoft innan almannavarna vegna ógna sem stafa af náttúruvá og það er eitthvað sem hjálpar okkur komi til annarrar tegundar ógnar. Við þekkjum hvað við þurfum að gera. Geópólitískur jarðskjálfti samtímans krefst þess að Ísland taki afstöðu, muni standa með bandamönnum sínum, leggja fram sína sérþekkingu og verja þau gildi sem hafa tryggt okkur frið og velsæld á síðustu áratugum.
Við í Framsókn boðum raunsæja, víðsýna, ábyrga utanríkisstefnu sem sameinar frið, jafnrétti og traust bandalagssamstarf og við erum tilbúin að vinna með núverandi stjórnvöldum að því. Okkur finnst skipta máli að í þessum sal tölum við sem mestu einni röddu, líka í þeim skilaboðum sem við erum að senda til bandamanna okkar en ekki síður til þeirra sem ógna okkur. Með því að horfast í augu við nýja veruleikann, stilla okkur saman við Norðurlöndin og efla varnargetu bandalagsins þá tryggjum við að íslenskt fullveldi standi sterkt, ekki aðeins í orði heldur líka í verki.
Hérna undir lok ræðu minnar væri auðvitað áhugavert að fara í að ræða um tollamálin og þessar viðskiptalegu ógnanir sem þar eru. Til þess gefst ekki tími þannig að ég ætla fyrst og fremst að enda á því að segja að við í Framsókn erum til í að leggja okkar framlag fram til að efla varnar- og öryggisumræðu í landinu, til þess að efla varnar- og öryggismál í landinu, til að byggja upp þá innviði sem við þurfum að vera með til þess að geta verið fullgildir aðilar að NATO, að því samstarfi við þær þjóðir sem ætla að koma og verja okkur komi til slíkra ógna. En fyrst og fremst líka til að styrkja landið okkar, innviðina okkar á þeim tíma sem sú uppbygging sem varnar- og öryggismál kalla á, kalla í raun og veru á uppbyggingu á innviðum sem nýtast okkur dagsdaglega ekki síður.