156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:33]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir sterka ræðu og mikilvæga. Mikilvæg skilaboð komu fram í ræðunni og ég vil kannski byrja á því að taka undir það sem hann sagði síðast um varnir. Ég held að það sé eitthvað sem er svolítið verkefni okkar allra og við eigum líka að nýta það á meðan svona þokkaleg samstaða er um það á þingi að það þurfi að efla varnir. Við erum ekki feimin við að tala um aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu. Um leið sé ég fram á það þegar við aukum hlut okkar í vörnum að það sé ekki síður vegna þess að við þurfum að byggja upp innviði okkar sem hægt væri að nýta ef til þess kæmi, sem við vonumst náttúrlega ekki til. Þetta er t.d., eins og hv. þingmaður þekkir í hans kjördæmi, að höfnin í Helguvík sé þannig byggð að hún geti tekið á móti herskipum og kafbátum en líka fiskiskipum. 90% tímans er hún í borgaralegri notkun. Við búum til vegi, hafnir og flugvelli og komum upp tækjum hvort sem er í gegnum Landhelgisgæsluna eða aðra, sem gerir okkur einmitt fært að sinna því sem mér fannst svo gott í ræðu hv. þingmanns, að byggja undir það að vera verðugir bandamenn, vera sterk og stolt sem hluti af NATO.

Mig langar að spyrja hv. þingmann um eitt sem ég er í rauninni algerlega sammála og vil vita hvort ég hafi ekki skilið hann rétt varðandi netöryggi og fjölþáttaógnir. Við erum að sjá að fjölþáttaógnir snúast ekki bara um netöryggi heldur erum við líka að tala um afvegaleiðingu umræðu og sundrun samstöðu. Við sjáum aftökur í sumum ríkjum og eitranir. Þegar kemur að netöryggi þá þurfum við enn frekar að styðja við það og við erum einmitt búin að færa netöryggisþjónustuna yfir í utanríkisráðuneytið. (Forseti hringir.) Það sem ég er að hugsa um er mannauðurinn, hvort hv. þingmaður sjái það svipuðum augum og ég að stór partur af þeirri fjárfestingu sem við þurfum að setja í varnir og öryggi sé ekki síst mannauðurinn.