156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:35]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það er mjög auðvelt að dýpka aðeins þá umræðu að þegar við vorum í raun og veru að setja CERT-IS á laggirnar eða skala það upp og innleiða NIS-tilskipunina, sem krafðist alls kyns, þá fórum við nokkrum sinnum í gegnum mat á stöðunni á því hvernig við erum stödd þegar kemur að fjarskiptum. Við höfum fengið verðlaun fyrir að vera fremsta fjarskiptaþjóð í heimi af hálfu fjarskiptaráðs heimsins. Gallar eða veikleikar okkar voru að við höfðum ekki nægilega margt fólk. Það skorti sem sagt mannauðinn til að byggja upp nægjanlega þekkingu. Þess vegna fórum við á þeim tíma út í það að halda samkeppnir, bæði fyrir háskólanema en líka framhaldsskólanema, og auka samstarf við erlenda háskóla á þessu sviði, til þess einfaldlega að auka áhugann og taka umræðuna um mikilvægi þess og möguleikana á að vinna í þessu áhugaverða umhverfi. Ég held að það hafi að einhverju leyti tekist og við höfum verið á góðri siglingu með að styrkja netvarnir okkar á síðustu árum og CERT-IS er held ég mjög gott dæmi um það. Við höfum jafnframt fyrir ekkert svo löngu tekið þátt í stofnunum, bæði í Helsinki og Tallinn, sem vinna á þessu sviði og höfum verið með fólk þar starfandi sem síðan kemur heim með þekkinguna og bætir í og aðrir fara út í staðinn. Ég get því tekið undir með hæstv. ráðherra að á þessu sviði þurfum við að efla þekkingu okkar og hluti af því er að efla mannauðinn, fjölga fólki. Það gildir reyndar um mjög marga aðra þætti í varnar- og öryggismálum.