utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið sem veitir von um það að við nálgumst þetta samhent og verðum með heildarmyndina. Mig langar að koma að allt öðru; hræðilegu ástandi á Gaza. Ég greindi það hjá hv. þingmanni Framsóknarflokksins, Höllu Hrund Logadóttur, að hún hefði líka miklar áhyggjur af því og að við þyrftum að taka afgerandi skref. Við höfum verið að gera það, höfum verið að breyta ákveðnu og ég upplýsti um það áðan að á föstudaginn sagði fulltrúi ráðuneytisins á EFTA-fundi að við værum ekki tilbúin til þess að uppfæra fríverslunarsamning við Ísrael meðan ástandið er með þessum hætti. Það er stutt af Noregi og skilningur sýndur. Hvað sér hv. þingmaður að við gætum gert enn frekar? Ég held að það skipti máli að við beitum okkur, eins og hv. þingmaður segir, og við erum að reyna að gera það hvar sem komið er niður, í mannréttindaráðinu og í þessum hópi. Sumir segja að þetta séu bara sex þjóðir, en þetta er samt skref þjóðanna Spánar, Írlands, Slóveníu, Lúxemborgar, Noregs og Íslands sem segja: Þetta gengur ekki lengur. Með þessu erum við ekki að segja að það eigi ekki að leysa gíslana úr haldi o.s.frv., það er ein af okkar kröfum, en þetta ástand fyrir botni Miðjarðarhafs er algjörlega óboðlegt og mér finnst það pínulítið þrot alþjóðasamfélagsins að í 70 daga er ekki búið að koma neyðaraðstoð til fólksins á Gaza. Það er miklu frekar þannig að verið er að undirbúa hreinar þjóðernishreinsanir eins og hugmyndir eru uppi um. Maður eiginlega dæsir og finnst það vera óþolandi að við getum ekki fengið allt alþjóðasamfélagið með okkur, en það er erfitt á meðan stóru þjóðirnar hreyfa sig ekki. Þá getum við þó gert þetta: Fengið fleiri þjóðir með okkur til þess að taka þessi skref til að skapa þrýsting á að koma að neyðaraðstoð, koma á skilyrðislausu vopnahléi þannig að við komum að mannúðaraðstoð og að gíslar verði látnir lausir. (Forseti hringir.) Hvað sér hv. þingmaður í þessu og hver er afstaða Framsóknarflokksins, af því að (Forseti hringir.) ég greindi ákveðna stefnu og sýn hjá öðrum stjórnarandstöðuflokki sem er kannski með aðeins öðrum hætti en Framsóknarflokksins?