156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:40]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef ég væri nú með lausnina á því myndi ég hafa nefnt hana löngu fyrr. Hvað getum við gert til þess að stoppa það sem þarna fer fram og er ekki bara óboðlegt heldur ógeðfellt? Ég tek undir með hæstv. ráðherra að öðru hvoru fallast manni hreinlega hendur yfir því hvernig fólk getur hagað sér. Um leið og við tökumst á við þetta held ég að við verðum að vera raunsæ. Við erum smáríki og þurfum að tala aðra til. Þar sem við beitum okkur ein og sér, það mun ekki hafa nokkur áhrif að öðru leyti. Við verðum líka að muna það á hverjum tíma að Hamas eru hryðjuverkasamtök. Það sem þeir gerðu 7. október 2023 var mjög ógeðfellt og þess vegna verðum við líka að virða þann rétt Ísraels að verja sig gegn slíku. En það sem nú er í gangi er eitthvað sem enginn í heiminum ætti að geta horft upp á án þess að gera neitt. Það er auðvitað óboðlegt og óverjandi með öllu að ekki sé hægt að koma mannúðarhjálp til aðstoðar fólki sem á ekki neitt og þar sem allt er horfið, öll hús, öll mannvirki, öll aðstoð. Það hlýtur á einhverjum tímapunkti að verða, getum við sagt, vandræðalegt fyrir heimsbyggðina ef hún lætur það viðgangast án þess að takast á við það.

Stefna okkar í Framsókn er skýr. Hún byggir á mannúð og byggir á því að sækjast eftir friði. Hún byggir á því að skynsemi skipti máli. Hún byggir á því að halda uppi í samtali, tala við fólk og trúa því að lokum (Forseti hringir.) að með skynsemi og góðum hugmyndum, góðum ráðum, sé hægt að opna augu fólks fyrir því hvað er rétt, hvað er rangt og hvað menn eiga ekki að gera.