156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:43]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég tek til máls í umræðu um skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál fyrir árið 2024. Skýrslan er prýðilega vel unnin og yfirgripsmikil. Hún er fróðleg og gagnleg heimild fyrir þau sem vilja kynna sér punktstöðu alþjóðamála og stöðu Íslands á alþjóðavísu og það er rétt að þakka starfsfólki ráðuneytisins sem komið hefur að gerð hennar fyrir vel unnin störf og sömuleiðis hæstv. ráðherra fyrir hennar samantekt hér áðan.

Skýrslan ber það með sér að við lifum á miklum umbrotatímum sem er ekki endilega eftirsóknarvert. Endalokum sögunnar, þeim er lokið. Öryggisumhverfi Evrópu er breytt. Við erum að horfa upp á stríðsátök af stærðargráðu sem við höfum ekki séð í okkar heimshluta í átta áratugi. Hugmyndir um fríverslun og frelsi í viðskiptum eiga undir högg að sækja. Það hriktir í stoðum hins alþjóðlega kerfis sem við töldum okkur geta stólað á. Það er reynt að grafa undan fjölþjóðasamstarfi. En ég ætla í þessari ræðu að tæpa á níu atriðum sem mér finnst bera hæst í umræddri skýrslu.

Virðulegur forseti. Fyrst er það Úkraína. Nú eru liðin þrjú ár frá ólögmætri allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Með hetjudáðum hefur Úkraínu tekist að verja fullveldi sitt gagnvart nýlenduveldinu sem vill gleypa það í einum bita. Það er það sem málið snýst um. Það er ástæða til að þakka ríkisstjórn fyrir hennar staðfasta stuðning við Úkraínu. Málið snýst um virðingu fyrir alþjóðalögum, öryggi Evrópu og Íslands þar á meðal. Hæstv. forsætisráðherra, utanríkisráðherra og forseti þingsins, auk þess sem hér stendur í hlutverki sínu sem formaður utanríkismálanefndar, hafa öll heimsótt Kyiv á fyrstu mánuðum þessa árs. Þá hefur Ísland boðað aukinn stuðning við varnartengd verkefni í Úkraínu sem er vel.

Þá er það næsta atriði, næsta skref. Það fer ekki fram hjá neinum að þessa dagana er töluvert rætt um mögulegt vopnahlé og stríðslok. En til að það sé eitthvað annað en stutt pása meðan rússneski herinn endurheimtir og byggir upp styrk sinn og lætur til skarar skríða að nýju, verður Úkraína að fá raunverulega tryggingar fyrir öryggi og fullveldi sínu til frambúðar. Við skulum hafa það á hreinu hér: Einfaldasta, tryggasta og ódýrasta leiðin til þess er full aðild Úkraínu að NATO. Það eru aðrar lausnir eins og þær að Úkraína sjálf komi sér upp hernaðarmætti og -tækni til að fyrirbyggja framtíðarinnrás. Höfum samt á hreinu að allar slíkar lausnir eru dýrari og síðri, líka með hliðsjón af öryggi vesturveldanna og NATO.

Vindum okkur í varnarmál. Breytt öryggisumhverfi Evrópu hefur kallað á mikla umræðu um öryggis- og varnarmál hér á landi. Það hefur ekki farið fram hjá neinum. Boðað hefur verið að mótuð verði ný stefna í öryggis- og varnarmálum í samráði við alla flokka sem eiga sæti á Alþingi. Það er sannarlega breytt landslag hvað það varðar. Í fyrsta skipti í lýðveldissögunni ríkir einhugur um aðild Íslands að NATO hér á þingi. Ég hygg raunar að það sé ekki tilviljun. Sumir flokkar hefðu mátt líta til breyttrar heimsmyndar sem þeir gerðu ekki. En nú er mikilvægt að við metum stöðuna upp á nýtt og einbeitum okkur að tvennu, í fyrsta lagi: Hvað getum við gert til að bæta okkar öryggi gagnvart þeim ógnum sem við getum ráðið við? Og í öðru lagi: Hvað getum við gert til að efla okkur sem bandamann og hjálpað þannig við að efla varnargetu NATO í heild sinni gagnvart þeim ógnum sem við gætum ekki ráðið við sjálf? Það verður að segjast að samstarf NATO og ESB hefur verið að aukast. Evrópusambandið hefur látið meira til sín taka í varnarmálum og skemmst er frá því að segja að Danir samþykktu árið 2022 að falla frá undanþágu í sameiginlegri öryggis- og varnarstefnu ESB. Loks vil ég fagna fyrirhuguðum áætlunum um samstarf við ESB í varnarmálum líkt og þeim sem Norðmenn hafa þegar gert.

Virðulegur forseti. Virðing fyrir alþjóðalögum er lykilþáttur í íslenskri utanríkisstefnu. Þegar kemur að átökum fyrir botni Miðjarðarhafs er ljóst að ríki sem tilheyra hnattræna suðrinu hafa oft spurt Vesturlönd hvers vegna þau taki skýra afstöðu með alþjóðalögum þegar kemur að Úkraínu en tali ekki skýrt þegar kemur t.d. að hugmyndum um að flytja alla íbúa einhvers svæðis varanlega í burtu og leggja svæði undir sig. Slíkar hugmyndir eru ekki boðlegar og samræmast með engum hætti alþjóðalögum. Stefna íslenskra stjórnvalda byggir á þingsályktun frá Alþingi frá nóvember 2023. Við köllum eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum og lausn allra gísla. Í kjölfarið er nauðsynlegt að vinna áfram að tveggja ríkja lausn. Þótt sú lausn virðist nú víðs fjarri er hún samt eftir sem áður eini ramminn sem við höfum til að koma á varanlegum friði á svæðinu.

Virðulegur forseti. Ég ætla þá að víkja að áherslu á réttindi kvenna og hinsegin fólks. Í skýrslunni er lögð áhersla á kynjajafnrétti og mannréttindi sem leiðarljós í þróunarsamvinnu. Þetta er í takt við stefnu Viðreisnar. Við eigum að beita okkur fyrir jafnrétti og réttindum kvenna og þar höfum við trúverðugleika sem land. Við eigum að vera fyrirmynd þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Þar höfum við líka trúverðugleika sem land og það hefur sjaldan verið jafn mikilvægt. Það er víða höggvið að réttindum fólks, ekki bara einhverjum abstrakt réttindum heldur grundvallarréttindum, ferðafrelsinu sjálfu. Þar heggur stundum sá er hlífa skyldi.

Virðulegi forseti. Á árinu sem leið var haldið upp á að þá voru 30 ár liðin frá gildistöku EES-samningsins. Það er okkar allra mikilvægasti viðskiptasamningur sem tryggt hefur aðgang íslenskra fyrirtækja að okkar mikilvægasta útflutningsmarkaði og tryggt um leið rétt Íslendinga til að setjast að í Evrópu. Um það virðast margir sammála í þessum sal. Það var skýr vilji Alþingis á sínum tíma að samþykkja EES-samninginn og undirgangast þær skuldbindingar sem honum fylgja. Í ljósi þess að íslenskir dómstólar hafa komist að því að bókun 35 hafi ekki verið rétt innleidd í íslenskan rétt þá biðla ég til flokka hér í þinginu að ljúka þeirri innleiðingu með réttum hætti. Nú reynir á hvort fólk meinar það sem það segir þegar talað er um EES-samninginn sem mikilvægasta viðskiptasamning sem Íslendingar hafa gert.

Við í Viðreisn höfum þá skoðun að hagsmunum Íslands sé best borgið í samstarfi við okkar vinaþjóðir í Evrópusambandinu. Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu hefur verið boðuð í stjórnarsáttmálanum, að hún fari fram fyrir árslok 2027. Á mínum ferðum og í samtölum við evrópska þingmenn hef ég lagt áherslu á að útskýra það ferli og legg áherslu á að vilji íslensku þjóðarinnar verði virtur. Mér finnst samskipti í stjórnmálum í ESB góð og ég merki aukinn áhuga og skilning á okkar málstað.

Loks tel ég nauðsynlegt að við höldum áfram að efla okkar utanríkisþjónustu og að við tökum okkur pláss. Ég hef nýlega komið í sendiráð okkar í Brussel þar sem við leigjum hæð í norska húsinu eða Norway House. Ég velti aðeins fyrir mér myndmálinu sem því fylgir, en það er önnur saga. Ég vil alla vega fagna því að við höfum öflug sendiráð, t.d. sendiráðið í Brussel sem er mjög vel mannað, sinnir okkar hagsmunagæslu þar á bæ mjög vel. Ég vil líka fagna því að við höfum nýlega opnað sendiráð í Varsjá sem fer mjög vel af stað. Það ræktar tengsl okkar við þetta mikilvæga ríki. Það er líka gaman að nefna það að nú búa hátt í 400 íslenskir ríkisborgarar í Póllandi, eitthvað af þeim eru Íslendingar af pólskum uppruna sem flutt hafa aftur en að rækta þau tengsl getur líka verið sterkt fyrir Ísland þegar á líður. Þá vil ég nefna að sendiráðið í Varsjá er einnig sendiráð okkar gagnvart Úkraínu og hefur sinnt þeim verkefnum svo eftir því hefur verið tekið.

Virðulegur forseti. Það sem dregur þessi atriði saman, allt frá stuðningi við Úkraínu, réttindi kvenna og hinsegin fólks til EES-samningsins og samskipta við Evrópusambandið er einföld en djúpstæð sýn. Viðreisn trúir á Ísland sem virkan þátttakanda í alþjóðasamfélaginu, Ísland sem stendur með lýðræði, mannréttindum og alþjóðalögum. Ísland sem tekur ábyrgð og nýtir rödd sína, ekki aðeins til að verja eigin hagsmuni heldur líka til að leggja sitt af mörkum til betri heims. Við trúum því að framtíð Íslands sé í opnu, frjálsu og réttlátu samfélagi þjóða, að við stöndum með vinaþjóðum okkar í Evrópu, þar sem við tókum þátt í að móta reglurnar, ekki aðeins að fylgja þeim, og þar sem við beitum okkur fyrir jafnrétti og mannréttindum nær sem fjær. — Forseti. Ég hef lokið máli mínu.