utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég verð nú að viðurkenna að ég og hv. þingmaður erum um margt sammála þegar kemur að utanríkismálum þó að það sé eitt stórt mál sem greinir okkur að. Ég ætla ekki að eyða andsvari mínu í það heldur langar mig að spyrja, vegna þess að hv. þm. Pawel Bartoszek er jafnframt formaður hv. utanríkismálanefndar, um fjölda funda þar sem hæstv. utanríkisráðherra hefur komið til fundar við utanríkismálanefnd. Það kann að vera að hv. þingmaður hafi það ekki alveg á …(Gripið fram í.) Jú, hv. þingmaður er með það alveg á hreinu þannig að mig langaði að kanna hversu oft hæstv. utanríkisráðherra hefur mætt til fundar með hv. utanríkismálanefnd. Ástæðan fyrir því að ég spyr er sú að utanríkismálanefnd gegnir mjög sérstöku hlutverki hér í þinginu og samkvæmt þingsköpum ber ríkisstjórninni og hæstv. utanríkisráðherra að eiga í stöðugum og góðum samskiptum við utanríkismálanefnd og leggja fyrir nefndina allar meiri háttar ákvarðanir. Nú hef ég ítrekað kallað eftir umræðu eins og er hér í dag, reyndar munnlegri skýrslu, og hefði viljað eiga meira samtal hér í þinginu um utanríkismál. En spurning mín til hv. þingmanns er hvort hann hafi svona á hraðbergi fjölda þeirra funda þar sem hæstv. utanríkisráðherra hefur mætt til fundar við nefndina og hvort það hefði kannski mátt funda jafnvel oftar með hæstv. ráðherra eða hennar fulltrúum um þau mikilvægu mál sem eru svo augljóslega í gangi núna.