156. löggjafarþing — 40. fundur, 12. maí 2025.
utanríkis- og alþjóðamál 2024.
371. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir hennar fyrirspurn. Ef spurningin er um fulltrúa ráðherra þá er þetta þannig að ráðuneytið sjálft hefur mjög oft mætt á fundi. En mér reiknast svo til að utanríkisráðherra hafi frá þingsetningu í þrígang komið á fund nefndarinnar, síðast á föstudag þar sem hún kom í rauninni að eigin ósk og var með okkur í hátt í tvo klukkutíma á mjög tæmandi og góðum fundi þar sem var farið yfir utanríkismál vítt og breitt.