utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ég spyr vegna þess að ég á ekki sæti í utanríkismálanefnd á þessu þingi og vil ítreka mikilvægi þess að það séu góð og regluleg samskipti hv. utanríkismálanefndar við hæstv. utanríkisráðherra. Það er nefnilega svo að hæstv. utanríkisráðherra og reyndar forsætisráðherra, og mögulega aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni líka, hafa ítrekað þurft að vera á erlendum vettvangi og tala þar fyrir Ísland og afstöðu Íslands þar sem aðstæður breytast mjög hratt. Þar af leiðandi vil ég leggja sérstaka áherslu á það að samskiptin séu stöðug núna. Ég verð að viðurkenna að þegar ég fór að horfa yfir fundargerðir tók ég líka eftir því að búið er að halda 14 fundi á þessum tíma í hv. utanríkismálanefnd og það eru fæstu fundir sem nokkur fastanefnd hefur haldið. Ég veit að málafæðin er oft þannig hjá utanríkismálanefnd, það eru færri mál, þetta eru meira innleiðingar, þingsályktunartillögur og slíkt. En ég verð samt að viðurkenna í ljósi þess ástands sem uppi er í alþjóðasamfélaginu að ég hefði jafnvel átt von á því að fundirnir yrðu fleiri því ekki höfum við náð að ræða utanríkismál og varnarmál og þá alvarlegu stöðu sem uppi er í samfélaginu, alheiminum öllum, nógu mikið í þingsal. Hv. þingmaður getur kannski komið aðeins inn á það. Ég bara vona og er í rauninni bara að leggja hér inn beiðni um það að á næsta þingi lánist okkur að bæði ræða utanríkismálin oftar hér í þessum þingsal við hæstv. ráðherra og milli okkar þingmanna en legg líka áherslu á mikilvægi þess að utanríkismálanefnd komi saman og sé hæstv. utanríkisráðherra alltaf til ráðgjafar í öllum stærri málum.