156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:57]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvarið. Ég tek bara þessari áskorun ágætlega. Ég reyndar held að það sé rétt að utanríkismálanefnd hafi kannski í gegnum tíðina verið sú nefnd þar sem oftast hefur verið fundarfall. Ég hygg hins vegar að nefndin á þessu þingi hafi starfað saman mjög vel og gengið mjög vel að afgreiða þau mál sem til hennar hafa borist, sem reyndar eru óvenjulega mörg miðað við fjölda þeirra fríverslunarsamninga sem við höfum t.d. afgreitt og síðan bókun 35 sem er stórt mál sem á okkur var lagt. Eins og ég segi tek ég bara þessari áskorun vel. Hygg ég reyndar að störf utanríkismálanefndar það sem af er þingsins hafi verið til fyrirmyndar og ég þakka bara mjög góð samskipti og traust sem ríkir meðal nefndarmanna í þeim efnum.