156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[19:58]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra og starfsfólki utanríkisráðuneytisins fyrir ítarlega skýrslu og ráðherranum fyrir framsöguna. Margt er þarna sem full ástæða er til að fjalla vel um og meira en kannski tækifæri gefst til hér í stuttri ræðu. Hæstv. utanríkisráðherra hefur á sínum fyrstu mánuðum í starfi sýnt fram á hugrekki og elju við að halda málstað Íslands á lofti og á sama tíma að hverfa ekki frá sjónarmiðum um manngæsku og friðartón. Ég vil líka þakka fyrrverandi utanríkisráðherra, hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fyrir hennar hlut í þeim verkefnum sem gert er grein fyrir í skýrslunni. Við sem störfum í hv. utanríkismálanefnd finnum það vel hversu djúpa þekkingu hún hefur á málaflokknum.

Virðulegi forseti. „Föðurland vort hálft er hafið.“ Vil ég því hér í upphafi þessarar ræðu beina athyglinni að hafinu og réttindum okkar og skyldum gagnvart því sem fjallað er um í skýrslunni. Í september 2023 skrifaði þáverandi utanríkisráðherra undir nýjan samning undir hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni í hafinu utan lögsögu ríkja. Mikilvægt ákvæði samningsins fjallar um umhverfisvernd á úthafinu og regluverk til að styðja þjóðir við það að ná markmiðinu um að vernda 30% hafsins. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins er fjallað um að stutt verði við líffræðilega fjölbreytni og ráðist í aðgerðir til að vernda hafsvæði og ósnortin víðerni.

Virðulegur forseti. Nýlega var frumsýnd kvikmyndin Hafið með David Attenborough þar sem m.a. er farið í gegnum það tjón sem hefur orðið vegna ofveiði og veiðiaðferða sem vægast voru sláandi en einnig er fjallað um það hvernig verndarsvæði eru að virka og hvernig hafið jafnar sig ef það fær bara frið til þess. Þetta vakti hjá manni bjartsýni. Ef hafið fær bara frið til að jafna sig þá gerir það það. Ég vil, virðulegur forseti, hvetja hv. þingmenn til að gefa sér tíma til að sjá umrædda kvikmynd. Verndun hafs og stranda er Íslendingum gríðarlega mikið hagsmunamál og mikilvægt að stjórnvöld fylgi þeim hagsmunum vel eftir á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um hafið í júní næstkomandi.

Virðulegi forseti. Þegar fjallað er um öryggismál og varnarmál má aldrei gleyma hafinu og mikilvægi þess. Hafið veitir okkur ákveðna vernd en um leið koma þar fram veikleikar okkar. Eftirlit á hafinu þarf að auka og sem betur fer eru uppi áætlanir um slíkt, bæði er varðar eftirlit með umferð á hafinu en ekki síður eftirlit með neðansjávarinnviðum okkar á borð við fjarskiptastrengina. Undanfarin ár hafa ítrekað verið unnin skemmdarverk á neðansjávarinnviðum t.d. í Eystrasaltinu. Við þurfum að vera viðbúin slíkum skemmdarverkum með auknu eftirliti og auknu viðbúnað ef til rofs kæmi. Ekki er samt nóg að horfa bara til hafsins heldur þarf að verja þessa innviði líka þar sem þeir koma á land. Til að geta staðið undir þessu þurfum við að tryggja getu Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar til að sinna þessu mikilvæga varnar- og öryggishlutverki.

Virðulegur forseti. Líkt og fram kemur í skýrslunni er vinna í gangi við greiningu á áfallaþoli Íslands. Það er mikilvægt verkefni sem ná þarf til allra mikilvægra samfélagslegra þátta. Sú vinna sem nú er unnið að í víðtæku samráði þarf að ná bæði til þeirra þátta sem snúa að sjö grunnviðmiðum NATO en ekki síður öllum þeim þáttum sem snúa að áfallaþoli mikilvægra innviða Íslendinga. Skilgreining á því hvað teljist til mikilvægra eða ómissandi innviða hér á landi er á ábyrgð íslenskra stjórnvalda og mikilvægt er að unnin sé skýr lýsing og skýrir mælikvarðar á hvað teljast mikilvægir innviðir og hvað teljast vera ómissandi innviðir.