156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:03]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér skýrslu utanríkisráðherra fyrir árið 2024 og það er rétt að byrja á að þakka starfsmönnum ráðuneytisins fyrir gott verk og góða uppsetningu á skýrslunni sem hefur verið afbragðsplagg undanfarin ár. Ég tek undir orð hv. þm. Víðis Reynissonar, það er gott að þakka hér þáverandi hæstv. utanríkisráðherra sem stóð mest allt árið í fyrra í stafni ráðuneytisins, hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.

Ég ætla aðeins að reifa nokkra punkta sem hafa verið mikið í umræðunni hér í þingsal og hefur stóraukist á undanförnum misserum, áhersluna á norðurslóðir og öryggis- og varnarmálin tengt því. Það er ekki langt síðan við vorum að ræða um norðurslóðir sem lágspennusvæði og þessi mál mátti ekki ræða og hefur ekki mátt ræða á vettvangi Norðurslóðaráðsins, The Arctic Council. En nú hefur þessi umræða gjörbreyst. Eftir að sjö af átta þátttökuríkjum í Norðurslóðaráðinu eru í Atlantshafsbandalaginu þá hefur umræðan breyst mikið og auðvitað með innrás Rússlands í Úkraínu 24. febrúar 2022.

Varnir Íslands hafa um áratugaskeið byggst á NATO-aðildinni, en við gerðumst aðilar að NATO í byrjun apríl 1949, og síðan skrifuðu Íslendingar undir tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin í maí 1951. Þetta hafa verið undirstöðurnar og stoðirnar í vörnum landsins en nú eru kannski að koma nýjar víddir inn í þetta, bara hvernig við erum farin að ræða þessi mál. Ég hugsa að við ræðum það bara betur þegar við ræðum varnar- og öryggisstefnu sem er nú í mótun og sem vonandi, eins og hæstv. utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom inn á í sinni ræðu, gæti jafnvel orðið tilbúin í júní. Það hafa orðið ótrúlega hraðar breytingar í vörnum í okkar heimsálfu og í umræðu, sérstaklega frá 2014 þegar Rússar réðust inn á Krímskaga. Þá fóru aðildarþjóðir Norður-Atlantshafsbandalagsins að vakna upp við vondan draum. Við sem erum í þessum sal munum kannski eftir því að á þeim tímapunkti voru einungis tvær eða þrjár aðildarþjóðir NATO sem náðu að verja 2% af landsframleiðslu til varnar- og öryggismála þótt lengi hafi verið kallað eftir því af Bandaríkjamönnum sérstaklega, að það ætti að vera viðmiðið fyrir aðildarþjóðir. Í júlí í fyrra á 75 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins kom fram að þær væru orðnar 23 og enn er talað um að mun hærri hlutföll þurfi að koma til. Við heyrum það í umræðunni núna að Pólverjar eru komnir í 5%, Eystrasaltsríkin eru komin í mjög háa prósentu og fleiri ríki eru að stefna hærra í þessu samhengi.

Umræðan er orðin gjörbreytt, eins og hefur komið fram hér í umræðunni í kvöld, innan Norðurlandaráðs, öll umræða um varnar- og öryggismál. Þetta var eitthvað sem var ekki talað um bara fyrir örfáum árum á vettvangi Norðurlandaráðs en eftir innrás Rússa í Úkraínu er sú staða gjörbreytt. Á fundi hæstv. forsætisráðherra í dag í Færeyjum er komið inn á þetta, það er verið að funda með danska forsætisráðherranum og þeim norska um öryggismál í Atlantshafi, á þessu svæði, í Norður- Atlantshafi í tengslum við Færeyjar, Grænland, Ísland og Noreg. Þannig að þetta er gjörbreytt staða og verður áhugavert að heyra kannski meira af því hér í þinginu hvaða hugmyndir eru í gangi í þeirri samvinnu. Við þekkjum að það hefur verið bætt gríðarlega í fjárfestingar af hálfu bæði Dana og Norðmanna og nú ætla Norðmenn að fara að byggja fimm stór skip fyrir sínar varnir og Danir eru að fara í tíu ára ferli núna til að endurnýja sín skip í Norður-Atlantshafi, fjögur talsins. Það eru háar upphæðir sem verið er að tala um í þessu samhengi.

Það sem er líka í umræðunni er að við erum hluti af sameiginlegu viðbragðssveitinni JEF; það eru Norðurlandaþjóðirnar, Eystrasaltsríkin, Holland og Bretland. Það hefur greinilega verið mikil gerjun í því starfi og það hefur þróast mikil vinna um það hvernig eigi að standa að málum. Við Íslendingar höfum verið, samkvæmt fréttum, að ræða við Bretland um frekara samstarf í varnar- og öryggismálum, sem er mikilvægt að ég held, miðað við allan þann áhuga sem maður finnur fyrir í Bretlandi á Norður-Atlantshafinu, þá líka á sögulegum nótum. Stærsta einstaka málið sem við skiljum mætavel, það var gríðarlega mikið og stórt mál, var þegar við fengum Írisi, þegar Íris var tengd frá Þorlákshöfn til Dublin á Írlandi fyrir tveimur árum síðan — það var svona fjórði strengurinn til Evrópu sem við erum að nota og svo er Grænlandsstrengurinn sem er ekki eins öflugur. Það að verja þessa strengi er gríðarlega stór og mikil umræða og það þarf náttúrlega að finna allar leiðir til að verja þá og tryggja öryggi þeirra gagnvart þeim fjölþáttaógnum sem við erum að kljást við í dag. Ég hygg að það verði mikil áhersla lögð á þetta. Við sjáum það líka hjá t.d. Atlantshafsbandalaginu og í allri umræðu þar, að verja fjarskiptastrengi, verja gasleiðslur og olíuleiðslur í sjó, verja alla þessa innviði sem eru í sjó. Þetta verður örugglega mjög mikilvægt í allri umræðu á Íslandi. Þess vegna hafa menn á undanförnum árum verið að byggja upp og tryggja og setja fjármagn í það að koma upp varasambandi með gervihnöttum, sem ekki geta nú flutt mikið, gagnamagnið sem þeir flytja er kannski 2–3% af því sem gagnastrengirnir geta flutt.

Við ræddum hér, ætli það séu ekki tvær vikur síðan, varnarmálalögin og CERT-IS, netöryggissveitina, sem er mikið skref að mínu mati, sá sem hér stendur leggur mikla áherslu á að það starf verði eflt og held að henni sé vel fundinn staður undir hatti utanríkisráðuneytisins. Sveitin hefur verið efld mjög á undanförnum árum. Áfallaþol og viðnámsþróttur er náttúrlega stöðug umræða og við sjáum það í þessari skýrslu þar sem er einmitt getið áhersluatriða, einir sjö punktar af hálfu Atlantshafsbandalagsins varðandi viðnámsþrótt og áfallaþol og slíka þætti, sem er, held ég, mjög í takti við það sem við Íslendingar erum að vinna með sem áherslur.

Síðan vil ég rétt koma inn á norræna varnarsamstarfið, NORDEFCO. Þar hefur náttúrlega orðið gjörbreyting eftir að Svíar og Finnar komu inn í Atlantshafsbandalagið og samstarfið þar hefur stóraukist. Ég vil bara ítreka enn einu sinni það sem ég hef oft komið inn á, þ.e. að þessi skýrsla verði endurunnin sem Björn Bjarnason og Jóna Sólveig Elínardóttir unnu fyrir norrænu utanríkisráðherrana og skiluðu af sér 2020, það var framhaldsskýrsla af skýrslu Thorvalds Stoltenbergs í kringum 2010. Vegna þeirra breyttu aðstæðna sem hafa orðið (Forseti hringir.) held ég að það væri vel að skoða þá vinnu á nýjan leik miðað við breyttar forsendur sem hafa orðið á ótrúlega skömmum tíma í tengslum við það.