156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:14]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Bara örstutt vil ég fyrst þakka hv. þingmanni fyrir hans mikilvæga innlegg inn í þessa umræðu og líka innsæi og þekkingu í málaflokknum. Um leið vil ég taka undir það sem hann sagði í lok sinnar ræðu varðandi uppfærslu á þeirri skýrslu sem Björn Bjarnason og Jóna Sólveig Elínardóttir gerðu ásamt fleirum á sínum tíma. Það hefur mjög margt breyst, ekki bara heimsmálin heldur hefur að einhverju leyti að mínu mati samstarf Norðurlandanna orðið mun þéttara og var samt kannski nóg fyrir. Það er að verða ákveðinn eðlismunur núna á þessum dögum og þessum misserum í samstarfi Norðurlandaríkjanna en líka auðvitað í samvinnu við Eystrasaltsríkin. Síðan eigum við eftir að sjá, það er náttúrlega alveg ljóst hver afstaða Íslands er varðandi Grænland og Færeyjar, að þau eigi að hafa ríkari aðkomu að öllu þessu samstarfi og ég tel mjög mikilvægt að þessi keðja ríkja að einhverju leyti í gegnum JEF tengist vel saman. En ég sé líka fyrir mér að efla okkar samstarf bæði við Grænland, og ég finn að það er vilji til þess þar líka, og við Færeyjar, Kanada, Noreg, Bretland, þessar þjóðir sem eru á þessu svæði. Það væri fróðlegt að heyra hvernig hv. þingmaður metur hvernig við getum fjölgað stoðunum undir okkar varnir. Við vitum að stoðirnar eru náttúrlega NATO og varnarsamningurinn. Hvað fleira sér hv. þingmaður vera til að styðja okkur varðandi öryggi og varnir? Ég er sammála honum í því að þar spila Norðurlöndin mjög mikilvægt hlutverk.