utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir andsvarið. Já, uppfærslan. Ég hef hrósað þessari skýrslu gríðarlega hér í þingsal og nokkuð reglulega og ég vona að þeir hv. þingmenn sem tóku þátt í umræðunni hér um netöryggissveitina bara fyrir tveimur vikum hafi mögulega gluggað í hana, vegna þess að sá sem hér stendur mælti mjög með henni á þeim tímapunkti líka. 30 síður, þetta er mjög þéttur og góður texti um efnislega mikið. Skýrslan hefur líka að mörgu leyti elst vel þó að hér sé talað fyrir því að hún sé endurskoðuð, endurunnin, bara út frá þeim gríðarlegu breytingum sem hafa orðið. Ég held að Norðurlandaþjóðirnar og sú tenging sé og muni verða ein allra mikilvægasta tenging okkar til framtíðar til viðbótar við tvíhliða samninginn, varnarsamninginn við Bandaríkin og síðan auðvitað NATO. En þarna eru náttúrlega þær þjóðir sem eiga mest sameiginlegt og við þekkjum það og ég held að það sé hægt að efla það. Ég benti hér fyrir mörgum árum, eða fyrir nokkrum árum a.m.k., í umræðu á fjölda orrustuþotna. Þetta eru öflug ríki, 30 milljónir, og það eru 250 háþróaðar orrustuþotur í þessum löndum sem er búið að endurnýja mikið á síðustu árum. Þetta er sambærilegur fjöldi og er hjá breska flughernum, franska flughernum. Þetta er eitt og svo er tæknigetan og annað.
Svo fæ ég kannski að koma inn á Grænland og Færeyjar sem er náttúrlega viðkvæmt mál að mörgu leyti en er gríðarlega mikilvægt. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að við verðum með í því út frá samvinnu við Norðmenn og sérstaklega náttúrlega Dani, (Forseti hringir.) að íslenska Landhelgisgæslan sé í eins góðu samstarfi í því sem snýr að þessu og hún getur verið og þá kem ég oft inn á þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og skipin og að styrkja allt þetta samhengi.