156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:18]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er þáttur sem við þurfum að gera meira af. Ég veit að Landhelgisgæslan sinnir náttúrlega sínu hlutverki. Það er alveg ótrúlega gaman að fylgjast með hvernig hún er t.d. að sjá um öryggissvæðið, Keflavík, og ég hef áður nefnt það hér að það er gaman að ræða við þær flugsveitir þjóða sem koma hingað og sinna loftrýmisgæslunni og þakka fyrir veruna hér og segja að Ísland sé besta gestaþjóðin sem þau hafa komið til. Maður fyllist stolti og metnaði en það er bæði skipulagningu fólks í ráðuneytunum, bæði utanríkis- og dómsmálaráðuneyti, en ekki síst Landhelgisgæslunni að þakka. Ég held að það muni gagnast öllum, Íslandi, Grænlandi, Færeyingum, að við förum í aukið samstarf, hvort sem er við Dani en líka Norðmenn. Norðmenn eru náttúrlega ótrúlega mikilvægir hér fyrir okkur líka og við fyrir þá.

Ég vil undirstrika, af því að við erum að tala um að breikka okkur eða fjölga fótunum undir okkar varnir, að við erum auðvitað, eins og þingmaðurinn þekkir vel, í mjög öflugusamstarfi og samtali tvíhliða við þjóðir eins og Breta, Frakka, Þjóðverja, ótrúlega mikilvægt að finna þessa gagnkvæmni sem þar ríkir. Allt þetta hjálpar okkur og auðvitað erum við farin af stað, eins og við erum búin að greina frá, varðandi samstarf og setja fram samstarfsyfirlýsingu við Evrópusambandið líkt og Norðmenn hafa gert. Þannig að það er ýmislegt verið að gera og mér finnst gott að skynja, eins og ég segi, þennan metnað sem kemur fram hjá þingheimi og m.a. hjá hv. þingmanni.