utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Það er náttúrlega merkilegt að tala í gegnum árin við þær þjóðir sem koma hérna í loftrýmisgæsluna með sínar orrustuþotur og herafla, hversu vel þær láta af því að koma hingað. Eins og hæstv. utanríkisráðherra kemur inn á þá er þessi þjónusta mikils metin, eins og gistináttastuðningurinn og hversu vel við tökum á móti þeim þjóðum sem koma til Íslands. Það kæmi mér ekki á óvart ef loftrýmisgæsla myndi eflast á næstu árum enn frekar. Í stað þess að vera þrjú, fjögur skipti á ári í þrjár, fjórar vikur þá myndi það eflast á komandi árum. Svo erum við náttúrlega að sjá nýja hluti kom inn. Ég held að það hafi örugglega komið fram í fjölmiðlum að það er verið að skoða nýja hluti í því hvernig við eigum að fylgjast með hafsvæðinu hér í kring, með drónum og slíkum hlutum. En það er líka áhugavert og við sjáum að Þjóðverjar, Frakkar, Bretar hafa mikinn áhuga á þessu hafsvæði hérna í kringum landið og á öryggismálunum í norðanverðu Norður-Atlantshafi og allir, held ég, búnir að átta sig á því í dag hversu gríðarlega, þó að við færum bara í söguna í gegnum áratugina, mikilvægt landfræðilega svæðið er. Ég held satt að segja að það hafi ekki margir minnst einmitt á þessa landfræðilegu stöðu Íslands, en bara staðsetningin er með þeim hætti að hún fer ekki frá okkur. Ég held að það verði t.d. mikil og stór umræða í öryggis- og varnarmálum í tengslum við Grænland, norðausturhluta Grænlands þar sem þjóðgarðurinn er og í því strjálbýli sem þar er, að það gæti verið eitthvað sem myndi eflast mjög á næstu misserum, hvernig eigi að horfa t.d. til þess svæðis.