156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:23]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir skýrslu um utanríkismál fyrir árið 2024. Ég veit ekki hvort fleirum hér inni er þannig innanbrjósts en mér líður eins og það sé mjög langt síðan það var árið 2024 þegar kemur að utanríkis- og varnarmálum. Það er að teiknast upp ný staða í heimsmálunum og hún er raunar svo síbreytileg, liggur mér við að segja, að það kallar á fulla athygli nánast frá degi til dags. Á fyrstu vikum kjörtímabils nýs Bandaríkjaforseta hefur óvissa tekið við af stöðugleika varðandi sumt sem við höfum tekið sem gefnu árum og áratugum saman. Ég held að við verðum að færa þetta í orð þó að okkur líði nánast eins og það sé óþægilegt, en þetta varðar risastór mál eins og afstöðuna til Úkraínu, afstöðu til nánustu bandamanna, Bandaríkjanna, síðustu áratugi, afstöðuna til Rússlands og hættumat í því efni, afstöðu til Kanada, Danmerkur, Grænlands, Evrópu yfirleitt, jafnvel NATO. Margt af þessu er á ferð og flugi í umræðunni, bæði af hálfu Bandaríkjaforseta en líka forystumönnum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og talsmanna. Leiðtogar Evrópu og Kanada ásamt fleirum hafa brugðist við með því að hittast miklu þéttar en áður. Við höfum séð Evrópusambandið hreyfa sig í mjög stórum málum hraðar og markvissar heldur en sumir hefðu getað trúað. Þess vegna held ég að verkefnið okkar akkúrat núna, þegar við erum að móta stefnu í öryggis- og varnarmálum, sé að móta stefnu í stöðu sem einkennist m.a. af óöryggi. Við þurfum að taka inn ólíka þætti þegar við vinnum þessa vinnu.

Hluti af þessu er líka að það er í raun ákveðin óvissa um alþjóðakerfið sem slíkt. Eftir síðari heimsstyrjöld voru ótal alþjóðastofnanir stofnaðar. Við getum nefnt Sameinuðu þjóðirnar, við getum nefnt Evrópusambandið, við getum nefnt NATO. Það hriktir víða í þessu. Bandaríkin hafa dregið sig út úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, sem eitt og sér er býsna alvarlegt. En ég ætla að gera þennan varnarþátt og varnarsamstarf að aðalumfjöllunarefni. Ísland á auðvitað mjög mikið undir samstarfi sínu við Bandaríkin, ég ætla ekki að draga fjöður yfir það. Varnarsamstarfið og aðildin að NATO eru þessir tveir hornsteinar ásamt kannski með þeim þriðja sem er herleysið. Ísland á mikið undir því að það verði ekki grundvallarbreytingar í þessu efni. Eins og síðasti ræðumaður fjallaði um þá er ekki líklegt að það verði breyting á hnattstöðu Íslands, sem er auðvitað gríðarlega mikilvæg ekki bara fyrir okkur sjálf heldur fyrir Bandaríkin og raunar Evrópu að sumu leyti út af sömu strategísku málum. En það hefur einkennt auðvitað varnarstefnuna beggja vegna Atlantsála að Bandaríkin hafa borið þar höfuð og herðar og borið stóran hluta byrðanna sem nú er verið að ræða um að skipta jafnar.

Óvissa um alþjóðalög og leikreglur í samskiptum ríkja eru hins vegar umhugsunarefni fyrir mjög marga mjög víða um heim en það ætti að vera sérstaklega umhugsunarefni fyrir herlausa smáþjóð. Við höfum frábæra reynslu af Bandaríkjunum sem málsvara alþjóðalaga, alþjóðastofnana og leikreglna í samskiptum ríkja. Ég nefndi hér áðan í andsvari lýðveldisstofnunina, Marshall-aðstoðina, þorskastríðin. Við höfum kannski ekki fundið það undanfarna áratugi í almennri umræðu en við finnum það núna þegar er hægt að setja spurningarmerki við hver stefnan er og þá sjáum við að Evrópa stígur fram og talar af myndugleik fyrir þessum þáttum. Við finnum öll fyrir því að við þurfum að fara í gegnum hlutina, endurmeta þá og passa upp á hagsmuni Íslands. Við þurfum bandalög, ekki bara bandalag, og við þurfum samskipti við allar okkar vinaþjóðir þéttar og nánar en áður.

Ég lýsti þeirri skoðun fyrir síðustu þingkosningar að ef Donald Trump næði kjöri sem forseti Bandaríkjanna þá gætu vaknað stórar spurningar um hvar við Íslendingar ættum heima í samfélagi þjóða, en þessar spurningar hafa í raun orðið aðkallandi miklu fyrr og af meiri alvöru og kannski háska heldur en mig alla vega óraði fyrir. Ég held hins vegar að hin nýja ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hafi slegið alveg hárréttan tón í sinni samstarfsyfirlýsingu þegar hún sagði að utanríkisstefna hennar byggð á mannréttindum, friði og virðingu fyrir alþjóðalögum. En við verðum að horfast í augu við það að allt þetta þrennt er í ákveðnu uppnámi. Eins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sagði áðan þá er ekki hægt að tala um það að við búum við frið. Það er bakslag í mannréttindum og alþjóðalög eru fótum troðin, t.d. á Gaza, en að sjálfsögðu líka í innrás Rússa í Úkraínu.

En ríkisstjórnin sagði fleira. Hún einsetti sér að eiga í náinni samvinnu við Evrópusambandið, önnur norræn ríki og Atlantshafsbandalagið. Ég held að þetta geti allir flokkar á Alþingi sameinast um. En ég held að spurningin sem við þurfum að svara sé hvernig við eigum í þessu sambandi og nánari samskiptum, hvernig við sjáum fyrir okkur eftir fimm eða tíu ár að Norðurlöndin verði sem sterkust. Saman, já, saman í NATO, já, saman í Evrópusambandinu? Eru þau sterkari eða veikari saman þar? Í mínum huga er það ótvírætt að Norðurlöndin eru miklu sterkari þar saman og við hlið Eystrasaltsríkjanna, í náinni samvinnu við Bretland og líka Pólland og Þýskaland þó að þau séu ekki á sama herstjórnarsvæðinu ef þessir nýju uppdrættir að því eru réttir í kollinum hjá mér. Ég held að við eigum þjóðarhagsmuni undir nánu samstarfi og við eigum að reyna að vera við öll þau borð þar sem framtíðarsýnin er mörkuð, stefnan lögð og ákvarðanir teknar og forgangsröðun fer fram. Við erum herlaust smáríki og eigum rosalega mikið, svo ég noti bara það orðalag, undir öðrum. Við eigum allt undir virðingu annarra fyrir fullveldi, sjálfstæði og alþjóðalögum. og við verðum, ekki bara núna heldur höfum við alltaf þurft á ákveðinn hátt að deila þess vegna fullveldi okkar með öðrum eins og í varnarsamningnum við Bandaríkin, eins og í EES-samningnum, til þess að eiga bandamenn og vera traustir bandamenn.

Heimavinnan okkar núna er m.a. að við flýttum því að hefja mótun öryggis- og varnarstefnu og ég vil hrósa ráðherranum alveg sérstaklega fyrir það og mjög skörulega framgöngu að undanförnu í málefnum Gaza og að standa vörð um þau prinsipp sem við stöndum fyrir sem þjóð og eru okkar þjóðarhagsmunir. Núna held ég að okkar bíði mjög stórt verkefni, að skilgreina þau verkefni sem fram undan eru varðandi innviði og áfallaþol. Þá er ég að tala um það sem nýtist í varnarmálum en eru í raun í grunninn samfélagslegir innviðir eins og heilbrigðisþjónusta, almannavarnir en líka efling sjúkra- og björgunarflutninga, m.a. með flugi, innviðir í því efni, innviðir vegna netöryggis og fjölþáttaógna, löggæsla, Landhelgisgæslan — hlutir sem í raun þjóðin kallar eftir. En síðast en ekki síst þurfum við að setja á dagskrá (Forseti hringir.) spurningar um frekari skref í nánari samvinnu við aðrar þjóðir.