utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir sköruglega ræðu og raunsæja. Það skiptir líka máli að vera með þetta blessaða sæti við borðið. Af því að við erum að tala mikið um varnarmálin þá hefur það sýnt sig hversu óhemjudýrmætt það er fyrir okkur Íslendinga að hafa tekið það framsýna skref á örlagatímum, ógnartímum eftir seinni heimsstyrjöldina þegar þjóðir voru að reyna að feta sig áfram og finna hvar öryggið væri, að hafa verið svo framsýn að taka þessa ákvörðun sem hefur heldur betur nýst okkur vel og verið farsæl. Ég hefði ekki boðið í það ef við hefðum ekki haft jafn framsýna menn og voru þá við stjórnvölinn. Við sem erum fædd á síðustu öld vitum alveg að 30. mars 1949 var ekki einhugur í samfélaginu um þessa ákvörðun, síður en svo, en hún var tekin með það í huga að verja fullveldi Íslands, verja frelsið og friðinn. Því skiptir máli að hafa kjark til þess að taka slíkar ákvarðanir.
Ég vil beina spurningu til hv. þingmanns af því að hann hefur tjáð sig með ákveðnum hætti um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Ég ætla ekkert að dylja það að auðvitað er ég honum sammála en við vinnum að sjálfsögðu eftir stjórnarsáttmálanum þar sem talað er um þjóðaratkvæðagreiðslu eigi síðar en árið 2027. Margir halda að það sé bara annaðhvort Evrópusambandið eða NATO. Það er ekki þannig. Það kemur ekkert í staðinn fyrir NATO-varnarbandalagið en Evrópusambandið getur verið viðbót við það. Við sjáum það líka að nú er Evrópusambandið að setja 800 milljarða evra á næstu fimm árum í varnar- og öryggismál til viðbótar við allt það sem þjóðirnar sjálfar eru að setja í varnarmál. Því er ekki spurning að Evrópusambandið er að taka risastórt skref í að skerpa sig og efla sínar varnir og öryggi. (Forseti hringir.) Ég horfi því á þetta sem eina heild, NATO og Evrópusambandið. (Forseti hringir.) Sterkari Evrópa þýðir sterkara NATO. Ég vildi spyrja hv. þingmann: Hvað ætti að hans mati fyrst og fremst að ráða því að við myndum og ættum að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni?