156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:36]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Kemur nú aðeins á mig vegna þess að ég þarf að gera hreint fyrir mínum dyrum. Ég er ekki bara alinn upp við Þjóðviljann heldur hef farið í Keflavíkurgöngu líklega sex ára gamall. Ég er alinn upp af miklum friðarsinnum og þau tengdu hersetuna við ófrið. Ég er rúmlega tvítugur þegar ég geri þetta svolítið upp í eigin lífi, er þá fyrst að byrja að hugsa eitthvað um alþjóðamál, EES-samninginn og NATO-aðildina. Það var sérstaklega samtal við unga konu frá Bosníu sem hreyfði rosalega við mér. Þetta er í átökunum á Balkanskaga og við erum í einhverju ungmennaverkefni og förum í lest um Evrópu. Það er mér ógleymanlegt að hún fór að tala um — mér fannst við vera krakkar og við vorum það — að það eina sem hún sæi sem öryggi fyrir sig væri að Bosnía yrði hluti af Evrópu, Evrópusambandinu og NATO, í einhverjum litlum hópi í einhverri ungmennaferð. Ég var svolítið sleginn utan undir af því að maður var bæði litaður af þessari pólaríseruðu umræðu um NATO en líka þessari ótrúlega neikvæðu umræðu sem oft er í garð Evrópumála og Evrópusamvinnu á Íslandi. Ég fór í heilmikla endurskoðun og hef í raun stutt allt alþjóðasamstarf Íslands síðan, þeim mun meira þeim mun betra. Þeim mun þéttara ef það er byggt á okkar gildum sem sjálfstæð, fullvalda þjóð sem styður mannréttindi, friðsamlega lausn deilumála og alþjóðalög.