156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Já, nákvæmlega. Ég er svo innilega sammála hv. þingmanni um það sem hann kom inn á í ræðu sinni um samstarf Norðurlanda. Þar sem við erum öll saman erum við sterkari. Ég er sannfærð um að það að vera öll saman í Evrópusambandinu muni gera Norðurlöndin sterkari, alveg eins og þegar Svíar og Finnar gengu í NATO. Þá varð sá hópur enn sterkari, þéttari innan NATO. Það er enginn vafi á því. Þetta er greinilega okkar sameiginlega skoðun.

Að lokum vil ég undirstrika að það er hið ískalda hagsmunamat fyrir Ísland, þjóðina okkar, sem á að skila því hvaða ákvarðanir við tökum í þessum efnum. Það þýðir líka að við eigum ekki að ýta hlutunum á undan okkur heldur þora að velta því fyrir okkur á hverjum einasta degi hvað er best fyrir landið okkar og hvernig við tryggjum fullveldi okkar sem mest og best. Við sjáum það alveg hvernig Úkraína svarar fyrir sig. (Forseti hringir.) Þau vilja vera í NATO og þau vilja líka vera hluti af Evrópusambandinu. Þannig telja þau sig verja fullveldið best og það er mjög skiljanlegt.