utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Þannig að ég komi nú að svarinu. Það er raunar önnur saga að ég upplifði sem borgarstjóri í nánu sambandi við borgarstjóra höfuðborga hinna Norðurlandanna þá grundvallarbreytingu sem varð á viðhorfi þessara gömlu rótgrónu hlutleysisríkja, hjá Svíum og Finnum — aðeins annar blær hjá þeim, en samt — sem taka á nokkrum vikum algerlega nýja stefnu varðandi aðildina að NATO, svipað og Danir gerðu í raun nokkrum mánuðum seinna hvað það varðar að verða hluti af varnar- og öryggissamstarfi Evrópusambandsins. Örlagatímar kalla stundum á það að maður endurhugsi gamla hluti. Þegar ég var að hvetja til þess að við myndum setja það á dagskrá að hugsanlega flýta atkvæðagreiðslunni þá nefndi ég raunar að það myndi best gerast í þverpólitískri samstöðu þar sem fólk myndi fara úr gömlu skotgröfunum, horfa aðeins yfir heiminn og hvernig hann er að breytast, (Forseti hringir.) horfa á okkar hagsmuni, okkar öryggi og framtíð og spyrja síðan þjóðina í breiðu samtali um hvernig við högum okkar hlutum best.