156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:41]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að leyfa mér að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýrsluna og þakka líka bara fyrir þá umræðu sem hefur farið fram hérna í dag og í kvöld. Eins og ég skil ræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar og efnisatriði þá er hann raunverulega að tala um að við höfum til skamms og langs tíma talað um tvær stoðir í varnarmálum Íslands, þ.e. varnarsamninginn við Bandaríkin og aðild okkar að NATO. Og eins og ég skildi hans ræðu þá er hann jafnvel að tala um þriðju stoðina, þ.e. Evrópustoðina. Mig langar til að spyrja hann og biðja hann að skýra það og fjalla aðeins um það hvernig aðild okkar getur orðið með þeim hætti, vegna þess að hún er ekki endilega þannig að það verði aðild að Evrópusambandinu, hún getur hugsanlega líka orðið með einhvers konar samstarfi við Evrópu. Þannig að mig langar til að biðja hann að fjalla aðeins um sína sýn á það.