utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Í mínum huga má eiginlega segja að við séum þegar komin inn í aðeins nýja heimsmynd. Já, við töluðum alltaf um tvær stoðir sem eru varnarsamningur við Bandaríkin og aðildin að NATO. En á síðustu árum höfum við í raun í orðræðunni bætt við þriðju stoðinni sem við köllum einu nafni svæðisbundið samstarf. Það er samtal við Evrópu en samstarf bæði við Norðurlöndin annars vegar og síðan í gegnum JEF, sem eru Norðurlönd, Eystrasaltsríkin, Bretar og Hollendingar. Við erum því að vinna með svæðisbundnar viðbragðssveitir í því þannig að við værum í rauninni að feta okkur, já, lengra út á þá braut. Og það sem ég er að taka inn í myndina er einfaldlega sú staðreynd — og við værum ekki að sýna Bandaríkjamönnum, okkar gömlu bandamönnum, fulla virðingu ef við værum ekki að hlusta á það sem hefur raunar verið sagt með ólíkum hætti alveg frá því að Obama var forseti, að Bandaríkin vildu setja meiri þunga yfir á Kyrrahafssvæðið en að Evrópa myndi axla meiri ábyrgð á eigin svæði og eigin vörnum. Ég tel að við ættum þess vegna og eðlilega að vera við borðið þegar Evrópa forgangsraðar sínum fjármunum og kröftum. En ef við viljum aftur vitna í einhverja sögu, og að þessu sinni Íslandssögu, þá má segja að þetta hafi verið raunin þegar Bandaríkin fara með varnarliðið endanlega héðan 2006 að þá eru það flugsveitir frá Evrópu sem fylla skarðið. Bandaríkin eru ekki alveg farin. Þau sinna þessu nokkrum sinnum á ári og evrópskar flugsveitir á móti þeim. Frakkar voru fyrstir en síðan hefur þetta verið koll af kolli. Þannig hafa í raun Evrópuþjóðir undirstrikað mikilvægi Íslands sem varnarsvæði líka fyrir sig svo að grunnurinn er þarna þegar.