156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:45]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir svarið við andsvari mínu. Ég hef raunverulega tvær spurningar sem mig langar til að leggja fyrir hann. Það er í fyrsta lagi hvort Evrópuríkin séu raunverulega álitlegur kostur í samstarfi. Það er svo sem ekki nýtt hjá þeim forseta sem nú situr í Bandaríkjunum að kvarta yfir því að Evrópuríkin hafi ekki tekið nægilegan þátt svona fjármálalega í vörnum Evrópu. Þó að hann sé kannski ókurteisari en margir aðrir í framsetningu sinni þá hafa fleiri forsetar talað um þetta. Þannig að mig langaði að spyrja hv. þingmann að því hvort það sé álitlegur kostur að vera í Evrópu, raunverulega, og eins hvort og þá hvernig við getum aukið og á hvaða sviði við eigum að auka fjármuni til varnarsamstarfs, varnar- og öryggismála.